Segja yfirmann fjölskyldudeildar hafa verið rekinn fyrir ummæli 12. september 2007 11:53 Guðríður Arnardóttir. MYND/Anton Brink
Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir segir að yfirmaður fjölskyldudeildar Kópavogsbæjar hafi verið rekinn eftir að hún hélt því fram í fjölmiðlum að deildin væri undirmönnuð. Nokkrum dögum síðar var gerður við hana starfslokasamningur og hún lét af störfum samdægurs. Samfylkingarmenn kröfðust þess fyrir hálfum mánuði að fá að sjá starfslokasamninginn en við því hefur ekki verið orðið enn. Oddvitinn segist ekki trúa öðru en að hún fái að sjá samninginn á bæjarráðsfundi á morgun. Forsaga málsins er sú að yfirmaður fjölskyldudeildar Kópavogsbæjar, sem annast barnaverndarmál, sagði í frétt í Ríkisútvarpinu að of fáir starfsmenn ynnu að barnaverndarmálum í Kópavogi og ekki væri hægt að sinna málum sem skyldi. Félagsmálastjóri bæjarins brást við og sagði starfsmanninn fara með rangt mál. Fljótlega eftir að umfjöllunin birtist var gerður starfslokasamningur við yfirmanninn, Kolbrúnu Ögmundsdóttur og lét hún af störfum samdægurs. „Við lesum ekkert annað í þetta en að hún hafi verið rekin," segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. Hún segist telja að með því að gera starfslokasamning við Kolbrúnu hafi yfirvöld viljað koma í veg fyrir að hún tjái sig um ástæðu brotthvarfsins. Í kjölfar þess að Kolbrún lét af störfum hafa síðan þrír af þeim sex starfsmönnum sem sinna barnarverndarmálum í bænum sagt upp störfum. Þegar hefur einn verið ráðinn til starfa og stöður hinna tveggja eru í auglýsingu. Guðríður segir álagið á starfsmenn deildarinnar hafa verið mjög mikið og að það batni klárlega ekki með þessum fréttum. Hún bendir á að í núlegri starfsánægjukönnun sem gerð hafi verið innan félagsþjónustunar hafi fjölskyldudeildin komið illa út. Þó hafi komið fram í könuninni að starfsfólkið væri ánægt með yfirmann sinn, Kolbrúnu Ögmundsdóttur.
Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Strandveiðisjómaður lést Innlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Unglingsstúlka lést þegar hestur dró hana eftir jörðinni Erlent Snurða hljóp á þráðinn í nótt Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Fleiri fréttir Líf í biðstöðu og hitafundur sósíalista Strandveiðisjómaður lést Deila um Suðurnesjalínu 2 fer beint í Hæstarétt Áslaug Arna farin í frí en enginn tekinn við Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Sjá meira