Ástþór fram til forseta enn og aftur 23. janúar 2007 09:45 Safnar nú kröftum úti í Danaveldi fyrir komandi forsetakosningar en Ástþór ætlar fram. „
Ég er nú staddur úti í Danmörku. Að safna kröftum. Tók mér frí frá þessu en þegar nær dregur þá kemur það,“ segir Ástþór Magnússon athafnamaður aðspurður um það hvenær menn gætu farið að eiga á því von að rödd hans sem forsetaframbjóðanda fari að heyrast. Ástþór ætlar fram og á síðu sem hann heldur úti, forsetakosningar.is, er teljari. Þar sem talið er niður til næstu forsetakosninga. Rétt rúmir 520 dagar samkvæmt teljara Ástþórs. Hann er þó ekki kominn í kosningastellingar enn sem komið er en hugsar sitt þar sem hann situr í Danaveldi. Ástþór segist ætla fram allt þar til friðarmálin verða komin á dagskrá á Bessastöðum. Ástþór hóf baráttu sína fyrir því að verða kosinn forseti árið 1996, þá undir slagorðinu „Virkjum Bessastaði“. Hafði ekki erindi sem erfiði en hefur reglulega, á fjögurra ára fresti, lýst yfir framboði eins og íslenskir kjósendur muna. Verður árið 2008 þar engin undantekning á. Nú þegar eru menn farnir að velta fyrir sér líklegum kandídötum á netinu og þannig hefur bloggarinn Steingrímur Sævarr Ólafsson stungið upp á Ólafi Ólafssyni sem kenndur hefur verið við Samskip. Síður er gert ráð fyrir því að Ólafur Ragnar Grímsson fari fram því einhvers staðar er haft eftir honum að ekki sé æskilegt að forseti sitji lengur en í 16 ár. „Hann sagði nú reyndar á sínum tíma að hann ætlaði bara að sitja í tvö kjörtímabil þannig að það er langur vegur frá því að hann sé sjálfum sér samkvæmur,“ segir Ástþór og furðar sig á því að Ólafur hafi ekkert svo heitið geti beitt sér á alþjóðavettvangi í friðarmálum – sem hann segir algera nauðsyn að koma á dagskrá. Heimurinn á hverfanda hveli. „Þetta eru tvö stærstu mál samtímans. Friðarmálin og umhverfismálin. Ef við gerum ekkert í friðarmálum útrýmum við okkur með kjarnorkuvopnum á næstunni og ef ekkert er gert í umhverfismálunum drukknum við í eigin skít.“
Mest lesið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Frægir fundu ástina 2025 Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Lífið Fleiri fréttir Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sjá meira