Innlent

Erlend kona lést í banaslysinu á Holtavörðuheiði

Erlend kona á sextugsaldri lést í umferðarslysi í gærkvöldi á norðanverðri Holtavörðuheiði. Fjórir slösuðust til viðbótar og var tvennt, maður og kona, flutt með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík.

Banaslysið varð á áttunda tímanum í gærkvöldi þegar pallbíll og fólksbíll rákust saman með þeim afleiðingum að konan lést. Tveir voru fluttir slasaðir, maður og kona, með þyrlu á Landspítalann í Reykjavík. Annar einstaklingurinn er á gjörgæsludeild og er stöðugur í öllum lífsmörkum en hinn er á almennri legudeild.

Tveir, sem voru minna slasaðir, voru hins vegar fluttir með sjúkrabíl á heilsugæsluna í Borgarnesi og þaðan með sjúkrabíl á slysadeild Landspítala í Fossvogi.

Langar raðir bíla urðu fljótlega beggja vegna slysstaðarins en mikil hálka var á heiðinni í gærkvöldi og snjókoma.

Lögreglan á Vestfjörðum fer með rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×