Forstjóri gekk á dyr hjá Ratsjárstofnun 20. október 2007 07:00
Ólafur Örn Haraldsson, forstjóri Ratsjárstofnunar, hefur ákveðið að láta af störfum og hefur kvatt starfsfólk stofnunarinnar. Ólafur hefur ekki tilkynnt ákvörðun sína til utanríkisráðuneytisins, sem fer með yfirstjórn stofnunarinnar. Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, hefur reynt að hafa samband við Ólaf vegna ákvörðunar hans en án árangurs. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fundaði Ólafur með starfsmönnum sínum í vikunni til að greina þeim frá ákvörðun sinni; öðrum sendi hann tölvupóst eða kvaddi símleiðis. Grétar segist ekki hafa séð tölvupóstinn en heyrt af honum. „Ég er að reyna ná í Ólaf til að fá að vita hvað liggur fyrir hjá honum, þangað til get ég ekki tjáð mig mikið um málið." Gagnger endurskipulagning stendur nú yfir á starfsemi Ratsjárstofnunar sem starfshópur skipaður sérfræðingum utanríkisráðuneytisins vinnur að. Öllum 47 starfsmönnum stofnunarinnar var sagt upp störfum um miðjan ágúst. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins voru laun starfsmanna Ratsjárstofnunar hærri en annarra opinberra starfsmanna og var þeim sagt upp til að ná niður kostnaði. Eftir uppsögn starfsfólksins vildi Ólafur engar upplýsingar gefa um laun starfsmanna eða hvort starfsmenn sem yrðu endurráðnir þyrftu að taka á sig launalækkanir. Grétar segist ekki geta svarað fyrir það hvort Ólafur verði endurráðinn þegar endurskipulagningu er lokið. Undanfarna daga hefur starfsemi aðalskrifstofu Ratsjárstofnunar í Síðumúla í Reykjavík verið flutt í starfsstöð stofnunarinnar á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Þeirri sameiningu er lokið. Grétar segist vona að hann geti leitað ráða hjá Ólafi vegna annarra breytinga á starfsemi Ratsjárstofnunar sem fram undan eru. Ekki náðist í Ólaf Örn við vinnslu fréttarinnar. - shá / - kdk
Mest lesið „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök Innlent „Mjög, mjög sorglegt“ Erlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Erlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Innlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Innlent Fleiri fréttir Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök „Áratuga afturför“ og frost í greininni Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Jötunheimar á Selfossi verður tólf deilda leikskóli „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Sérsveitin kölluð út en engum skotum reyndist hleypt af Söguleg handtaka og umdeildir skannar Brotist inn í leikskóla í Reykjavík Allt tiltækt slökkvilið slökkti sinueld Bráðabirgðaákvæði um kosningar í Grindavík samþykkt á þingi Hollenski skákmeistarinn og Íslandsvinurinn Jan Timman er látinn Braut ítrekað á stjúpdóttur og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun Rannsóknarprófessor og stofnandi Bláa lónsins hlutu Ásuverðlaunin Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu ítrekað Skipulagsstofnun lögð niður Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Rósa Björk býður sig fram í formann VG Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundi Inga hafnað „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Sjá meira