Slitnar upp úr samningaviðræðum Icelandair og flugmanna 6. september 2007 18:08 MYND/365
Upp úr slitnaði í dag í viðræðum Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna vegna ágreinings um forgangsréttarákvæði í kjarasamningum flugmanna við félagið. Flugmenn hafa boðað félagsfund á Grand Hótel í kvöld vegna málsins. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir að deilan sé komin á byrjunarreit eftir að samkomulag náðist milli deiluaðila í sumar. „Það kom upp grundvallar ágreiningur í viðræðunum sem reyndist erfitt að brúa," sagði Jóhannes Bjarni Guðmundsson, formaður Félags Íslenskra atvinnuflugmanna, í samtali við Vísi. „Þetta snýst um túlkun á atriðum kjarasamnings sem segir að við höfum forgang til vinnu. Fulltrúar Icelandair segja hins vegar að forgangsréttarákvæðið eigi ekki við í þessu tiltekna máli." Deilan blossaði upp í sumar eftir að ellefu íslenskum flugmönnum og 24 sumarstarfsmönnum var sagt upp störfum. Á sama tíma réð Icelandair erlenda flugmenn í gegnum áhafnaleigur til dótturfélagsins Latcharter í Lettlandi. Vilja flugmenn meina að Icelandair geti ekki sagt upp íslenskum flugmönnum en á sama tíma ráðið erlenda flugmenn til starfa og vísa í forgangsréttarákvæði í kjarasamningi máli sínu til stuðnings. Icelandair hefur hingað til talið að í þessu tilviki eigi forgangsréttarákvæðið ekki við. Samkomulag náðist milli deiluaðila í sumar og var ákveðið að hefja viðræður um forgangsréttarákvæðið. Upp úr þeim samingarviðræðum slitnaði í dag.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira