Innlent

"Vélin skall harkalega niður í lendingunni"

"Vélin skall harklega niður í lendingunni og síðan slökknaði á öðrum hreyfli hennar. Síðan var hún keyrð á miklum hraða eftir flugbrautinni og fór of hratt í beygju inn að flugstöðinni," segir Georg Guðjónsson en var ásamt konu sinni farþegi með flugvélinni sem lenti í óhappinu á Keflavíkurvelli í nótt.

"Þetta var svaka högg sem vélin fékk í lendingunni og við fundum verulega fyrir því," segir Georg sem telur að eitthvað hafi verið að vélinni þegar hún fór frá Edinborg eftir millilendingu þar. "Lendingin í Edinborg var mjög góð en þar þurftum við að bíða eins og raunar við upphaf ferðarinnar í Tyrklandi."

Georg segir að loftræstikerfi vélarinnar hafi þar að auki verið bilað og hitinn um borð allt að 40 gráðum. "Okkur seinkaði í Tyrklandi vegna einhverrar bilunar og aftur í Edinborg," segir Georg.

Rannsóknarnefnd flugslysa hefur nú lokið rannsókn sinni og telur hálku á vellinum hafa verið orsök óhappsins er vélin fór út af brautinni í beygju inn að flugstöðinni þannig að nefhjólið affelgaðist. Georg segir að hann telji að beygja hafi verið tekin á of miklum hraða miðað við aðstæður á vellinum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×