Bónus gefur 25 milljónir kr. 3. desember 2007 08:54 Jóhannes í Bónus segir það mikilvægt fyrir sitt fyrirtæki að láta gott af sér leiða.
Bónus færir nú Hjálparstarfi kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar og Akureyrar 25 milljónir króna að gjöf. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Reykjavíkurdeild Rauða Krossins og Hjálparstarf kirkjunnar munu eins og liðin ár taka höndum saman um jólaaðstoð í Reykjavík og á landsbyggðinni og fer meginhluti fjárins í það verkefni. Vegna sérstakra óska til Bónus var ákveðið að eyrnamerkja ákveðnar upphæðir til mæðrastyrksnefndanna í Hafnarfirði, Kópavogi og á Akureyri svo þær gætu sjálfar séð um aðstoð í sínum bæjarfélögum. Féð verður notað til að aðstoða þá sem við bágust kjör búa nú þegar jólahátíðin er framundan. Hjálparstarf kirkjunnar mun vinna með prestum og fagfólki á landsbyggðinni að úthlutun þar. Samtals verða gefin út 5.000 gjafakort frá verslunum Bónuss, hvert að andvirði 5.000 krónur. Gjafakortin eru nú í fyrsta skipti rafræn og eru því notuð eins og debetkort með 5000 kr. inneign. Handhafar kortanna geta keypt vörur að eigin vali í Bónus. Á liðnum fimm árum hefur Bónus gefið þessum félögum 91 milljón króna. Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónusi, segir að honum sé vel ljóst að neyðin sé víða mikil hjá fjölskyldum um land allt. Hann segir að eigendum og stjórnendum fyrirtækisins sé mikils virði að geta látið gott af sér leiða. Bónus hafi notið mikillar velgengni og velvildar í gegnum árin og fyrir það sé vert að þakka með þessum hætti.
Mest lesið Hnífstunga á Austurvelli Innlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Þorgerður til í fund og það strax Innlent Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Innlent „Langstærstu vandamálin eru þessir stærri og skipulögðu þjófnaðir“ Innlent Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Innlent Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Innlent Á fjórða tug ferðamanna látnir eftir að bát hvolfdi Erlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Fleiri fréttir 135 þúsund kjúklingar á Ásmundarstöðum í Ásahreppi „Langstærstu vandamálin eru þessir stærri og skipulögðu þjófnaðir“ „Umsókn Íslands að Evrópusambandinu hefur aldrei verið formlega dregin til baka“ Hornfirskur miði vann rúmar níu milljónir „Nýta þetta kjörtímabil til að troða Íslandi inn í ESB með sem mestum blekkingum“ Leikrit ríkisstjórnarinnar og hnífamaður flúði í strætó Hnífstunga á Austurvelli „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Allt að gerast á Húnavöku á Blönduósi um helgina Þorgerður til í fund og það strax Ráðherra bregst snögglega við og mikið stuð í Húnabyggð Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Sjá meira