Úr sveppunum í sollinn 10. febrúar 2007 13:30 „
Ég ætla að gera sem allra minnst. Laga klósettaðstöðuna og gera barinn huggulegri. En ég ætla að reyna að halda sama andanum. Halda í gamla kúnna og fá helst aðra nýrri," segir Ragnar Kristinn Kristjánsson fyrrverandi Flúðasveppagreifi. Hann hefur nú keypt sér Næsta bar við Ingólfsstræti. Fyrir tveimur árum seldi Ragnar Flúðasveppi og var kaupandinn nágranni hans á Flúðum, Georg Ottósson. Ekki var nokkur leið að fá Ragnar til að upplýsa hvað eitt stykki bar í miðborginni kostar. Kaupverð fæst ekki uppgefið. „Ekki spyrja mig um það. Það talar maður ekkert um," segir Ragnar. Né heldur var það gefið upp hversu mikið Georg greiddi fyrir Flúðasveppina fyrir tveimur árum. „En hann ætti að hafa efni á einum bar," segir Georg í samtali við Fréttablaðið. Og upplýsir að Ragnar sé mikill áhugamaður um barmenningu. „Þetta er hvort tveggja menning," segir Ragnar sem neitar því að það að eiga bar sé gamall draumur. „Nei, þetta hefur ekki blundað lengi í mér. Það er eins og annað í lífinu. Ýmislegt kemur upp á." Næsti bar hefur notið nokkurrar sérstöðu í barflóru Reykjavíkurborgar. Hann hefur lengi verið eini ómerkti bar borgarinnar og þar er ekki leikin tónlist í hátalarakerfinu. Þessu ætlar Ragnar að breyta. „Já, ég er einmitt nú í þessu að skoða skiltamál. Ef menn eru með hugmyndir eru þær vel þegnar. En það verða engar kóka-kóla auglýsingar á skiltinu. Því get ég lofað." Og tónlist ætlar Ragnar að setja í hátalarana. En leika einungis íslenska tónlist. Hún verður þó svo lágt stillt að menn verða hennar þá aðeins varir séu þeir einir inni á barnum og enginn til að halda uppi samræðulistinni. En lagt verður upp úr henni, samræðulistinni, eftir sem áður þrátt fyrir eigendaskiptin. Ragnar segist sjálfur ekki ætla sér að standa á bak við barborðið né reka Næsta bar dags daglega. „Ég tek við gömlu góðu áhöfninni sem hér hefur verið. Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi eigandi, verður áfram í brúnni. Ég hef sótt staðinn sjálfur í mörg ár. Það er leitun að bar eða krá þar sem er jafngóð þjónusta og hér er. Tekið af borðum snemma, maður fær fljótt afgreiðslu og vandað starfsfólk hér fyrir sem kann sitt fag."
Mest lesið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Einar og Milla eiga von á dreng Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira