Bæjarfulltrúar biðja hver annan að víkja 10. nóvember 2007 00:01 Sameinaður listi félagshyggjuflokka, Álftaneslistinn, er í meirihluta í bæjarfélaginu. Listi sjálfstæðismanna er einn í minnihluta.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisfélagsins á Álftanesi vilja Sigurð Magnússon bæjarstjóra úr starfi. Hann hafi verið dæmdur í héraðsdómi fyrir vanefndir á samningum, og siðferðisspurning vakni um hvort einstaklingur með slíkan dóm á bakinu sé hæfur til að stjórna bæjarfélagi. Dómurinn sem málið snýst um féll í Héraðsdómi Reykjaness síðastliðinn þriðjudag. Þar var Margfeldi ehf. dæmt til að greiða Hjálmtý Sigurðssyni rúma eina og hálfa milljón króna vegna vangoldinna launa. Margfeldi er í eigu Sigurðar Magnússonar bæjarstjóra. Vantrauststillaga var lögð fram á fundi bæjarstjórnar Álftaness á fimmtudag. Á fundinum sagði Sigurður fyrirtæki sitt hafa dregist með óheppilegum hætti í deilu milli nýrra eigenda fyrirtækis sem Margfeldi seldi, og rekstrarstjóra sem lengi hafði starfað hjá viðkomandi fyrirtæki. Deilan sé með öllu óviðkomandi málefnum Sveitarfélagsins Álftaness eða störfum sínum sem bæjarstjóra. Tillagan um að bæjarstjóranum yrði veitt lausn frá störfum var felld með fjórum atkvæðum gegn þremur. Forseti bæjarstjórnar, Kristján Sveinbjörnsson, færði til bókar að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisfélagsins hefðu uppi ítrekaðan persónulegan og oft níðingslegan málflutning. Málið ætti ekkert erindi inn á bæjarstjórnarfund og hann bæði þá bæjarfulltrúa sem þyrftu opinberlega að níða persónulega aðra bæjarfulltrúa að draga sig í hlé frá störfum í bæjarstjórn. „Það er ósköp leiðinlegt að starfa í svona andrúmslofti, þegar menn fara með svona bull í bæjarstjórnir,“ segir Sigurður. „Þetta er svona þegar menn hafa misst sjónar á málefnunum.“ Hann segist efast um að íbúar á Álftanesi hafi nokkurn áhuga á máli sem þessu. Guðmundur G. Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðisfélagsins á Álftanesi, segist sem minnst vilja gera úr málinu. „Við veltum upp þessari spurningu, hvort það orkaði tvímælis að maður sem hefur fengið slíkan dóm sé hæfur til að vera framkvæmdastjóri bæjarfélags. Meirihlutinn mat það svo að þetta væri ekki áhyggjuefni og þá er málið búið.“ salvar@frettabladid.is
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira