Íslensk Passat auglýsing gerir það gott 17. janúar 2007 17:16 Wolkswagen Passat auglýsing frá Íslandi slær í gegn
Ímyndarauglýsing fyrir Volkswagen Passat sem Hvíta húsið og Saga film gerðu fyrir bifreiðaumboðið HEKLU er nú sýnd við góðan orðstír á sjónvarpsstöðvum í Suður-Kóreu og Ungverjalandi. Útlit er fyrir að hróður íslenskrar auglýsingagerðar berist víðar því þegar hefur komið fyrirspurn frá Taívan um afnot af íslensku Passat-auglýsingunni. Auglýsingin er öll hin vandaðasta en hún var tekin á 35 mm filmu á völdum stöðum í Reykjavík og á Nesjavöllum þar sem Volkswagen Passat líður um í svart-hvítum draumaheimi. Leikstjóri var Sævar Guðmundsson og Barði Jóhannsson í Bang Gang samdi tónlist sérstaklega fyrir þetta verkefni. Passat-auglýsingin barst frá litla Íslandi til milljónamarkaðanna í Suður-Kóreu (49 milljónir íbúa) og Ungverjalandi (10 milljónir íbúa) fyrir tilstilli auglýsingastofu Volkswagen í Evrópu, DDB International. „DDB hefur yfir að ráða öflugum gagna- og auglýsingabanka fyrir umboðsaðila VW um allan heim og þar sáu aðilar frá þessum löndum hana og föluðust eftir henni til sýninga," segir Kristinn R. Árnason hjá Hvíta húsinu. Áætlaður sýningatími á auglýsingunni í þessum tveimur löndum er 2-3 mánuðir en tekjurnar eru þó takmarkaðar fyrir þá sem gerðu auglýsinguna því bæði þessi lönd eru frekar ódýrir markaðir, í samanburði við Vestur-Evrópu. „Þessar fréttir komu okkur skemmtilega á óvart," segir Jón Trausti Ólafsson, markaðsstóri HEKLU, um þau tíðindi að auglýsing fyrirtækisins væri nú sýnd á milljónamörkuðum erlendis. „Þetta er mikil viðurkenning fyrir íslenska auglýsingagerð," bætir Jón Trausti við, „og sýnir svart á hvítu að við erum engir eftirbátar annarra þjóða í að gera áhugaverðar bílaauglýsingar. Ég útiloka ekki heldur að það verði framhald á þessu því nú þegar hafa umboðsaðilar Volkswagen í Taívan sýnt áhuga á að nota íslensku Passat-auglýsinguna."
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Tónlist „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Sjá meira