Tilkynningum vegna barnshafandi kvenna fjölgar 6. apríl 2007 12:21
Tilkynningar til Barnaverndar Reykjavíkur vegna barnshafandi kvenna nær fjórfölduðust í fyrra frá því árið á undan. Framkvæmdastjóri Barnaverndar segir þetta aðallega konur í mikilli neyslu. Þá eru hlutfallslega fleiri tilkynningar vegna barna einstæðra mæðra en annarra hópa. Í nýjum barnaverndarlögum sem tóku gildi árið 2002 var sett inn ákvæði sem kvað á um að heimilt væri að tilkynna um barnshafandi konur ef talið væri að ófædd börn þeirra væru í hættu. Áður en ákvæðið var sett inn var ekki hægt að tilkynna um vanrækslu eða hefja stuðningsaðgerðir fyrr en barnið var fætt. Steinunn Bergmann framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur segir að tilkynningum í tengslum við barnshafandi konur hafi fjölgað mikið milli ára. Árið 2004 voru tilkynningar þrjár, árið 2005 voru þær sex og í fyrra fjölgaði þeim mikið og voru alls tuttugu og tvær. „Heilbrigðisstarfsmenn hafa áttað sig meira á tilkynningaskyldunni og láta okkur vita þannig að hægt sé að undirbúa að móðir þurfi verulegan stuðning varðandi fæðingu barnsins. Oft er um að ræða mæður í talsvert mikilli neyslu. Þá þarf að grípa til aðgerða til að reyna tryggja öryggi ófædds barns," segir Steinunn. Einnig geti verið tilvik þar sem þroskaskerðingu verðandi mæðra sé að ræða. Lögð sé áhersla á að stutt sé við þær í samstarfi við fjölskyldu og vini til að undirbúa fæðingu barnsins. Þá eru tilkynningar til Barnaverndar Reykjavíkur hlutfallslega fleiri vegna barna einstæðra mæðra en annarra hópa. Rannsóknir hafa sýnt að einstæðar mæður lenda meira í þeim aðstæðum en annar hópur. Steinunn segir einstæðar mæður viðkvæman hóp sem þurfi oft mikinn stuðning. Skýringarnar séu líklega þær að stuðningur stórfjölskyldunnar hefur minnkað með árunum.
Mest lesið Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent „Þetta er ekki alveg óvænt“ Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Innlent Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ Innlent Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Fleiri fréttir Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Sjá meira