Innlent

Slasaðist töluvert á fjórhjóli á Suðurstrandarvegi

MYND/GVA

Ökumaður fjórhjóls slasaðist töluvert þegar hann missti stjórn á hjóli sínu á Suðurstrandarvegi norðan við Íshólfsskála um þrjúleytið í dag.

Fram kemur í dagbók lögreglunnar á Suðurnesjum að fjórhjólið hafi hafnað utan vegar og var maðurinn fluttur með sjúkrabifreið á Landspítalann í Fossvogi. Hann var meðal annars með brotinn ökla auk annarra meiðsla.

 

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði tvo ökumenn í dag, annan sem ók á 117 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni og hinn á Vogastapa og er hann grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×