Koma upp olíugirðingu við flutningaskipið Axel 27. nóvember 2007 10:02 MYND/Hornafjörður.is
Björgunarsveitarfólk úr Björgunarsveit Hornafjarðar vinnur nú að því að koma upp olíugirðingu til þess að koma í veg fyrir hugsanlega olíumengun frá flutningaskipinu Axel sem strandaði á Borgeyjarboða við Hornafjarðarós í morgun. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni barst tilkynning frá skipinu klukkan 8.20 um strandið. Það losnaði hins vegar af skerinu um fjórum mínútum síðar en þá var búið að senda út lóðsbát Hornafjarðarhafnar og Björgunarskipið Ingibjörgu. Verið er að kanna skemmdir á skipinu og skoða ástand olíutanka þar sem eitthvað virðist vera um olíuleka í sjó. MYND/Hornafjörður.is Aðalvél skipsins er ekki gangfær og bógskrúfurými er fullt af sjó. Unnið er að því að koma dráttartógi frá lóðsbátnum Birni yfir í skipið til að draga það fjær ströndu. Ekki er hægt að draga skipið til hafnar á Hornafirði að svo stöddu sökum óhagstæðra sjávarfalla en búist er við því að skipið verði dregið inn á einhverja Austfjarðahöfn. Varðskip er á leið á staðinn og er væntanlegt undir hádegið. MYND/Hornafjörður.is Axel er 2500 tonna frystiskip, byggt árið 1989. Skráður eigandi þess er Dregg ehf. en skipið er skráð á eyjunni Mön. Áhöfn skipsins, 11 manns, er öll íslensk. Skipið var á útleið þegar óhappið varð og engar upplýsingar hafa fengist um tildrög þess. Axel hefur að undanförnu verið í ferðum á milli Íslands og meginlands Evrópu og gjarnan siglt á hinar ýmsu hafnir umhverfis landið.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira