Eldur logar um alla sveit og andstaðan hörð í Flóa 16. nóvember 2007 18:51
Helga Arnardóttir skrifarSveitarstjórn Flóahrepps hefur hvorki látið Landsvirkjun hóta sér né kúga til að setja Urriðafossvirkjun á aðalskipulag, segir sveitarstjóri hreppsins. Talsmaður Sólar í Flóa segir eld loga um alla sveit vegna ákvörðunar sveitarstjórnar og andstaðan verði harðari en nokkru sinni fyrr. Í fyrradag samþykkti sveitarstjórn Flóahrepps tillögu með Urriðafossvirkjun á aðalskipulagi. Fyrr í sumar hætti sveitarstjórnin við að hafa Urriðafossvirkjun í skipulaginu og talið var að ávinningur af virkjun væri ekki nægur.Landsvirkjun boðaði þá til fundar með sveitastjórn og skömmu síðar setti hún fram tvær tillögur að aðalskipulagi, með virkjun annars vegar og án virkjunar hins vegar. Sú ákvörðun var harðlega gagnrýnd og talsmenn andstæðinga Urriðafossvirkjunar sögðu Landsvirkjun hafa bæði hótað og mútað sveitastjórn Flóahrepps til að skipta um skoðun.Steingrímur J. Sigfússon formaður vinstri grænna var einnig harðorður á Alþingi í gær vegna ákvörðunar sveitarstjórnar og sagði ljóst að Landsvirkjun hefði mætt á staðinn með seðlabúntið í annarri og byssuna í hinni. Aðalsteinn Sveinsson oddviti Flóahrepps vísar því alfarið á bug og segir ummæli Steingríms móðgandi. Margrét Sigurðardóttir sveitarstjóri Flóahrepps segir að sveitarstjórnin láti Landsvirkjun hvorki hóta sér né kúga til að setja Urriðafossvirkjun á aðalskipulag. Halldóra Gunnarsdóttir talsmaður Sólar í Flóa segir ákvörðun sveitastjórnar valda miklum vonbrigðum. Þótt sveitarstjórnin hafi gefist upp ætli Sól í Flóa ekki að gefast upp. Eldur logi um alla sveit og andstaðan verði harðari en nokkru sinni fyrr. Með urriðafossvirkjun inn á aðalskipulagi hyggst Landsvirkjun meðal annars bæta farsímasamband á svæðinu, malbika um 17 kílómetra vegarkafla í hreppnum og kosta aðlögn fyrir vatnsveitu sveitarfélagsins. Lónið verður staðsett nokkrum kílómetrum fyrir ofan Urriðafoss og verður hæð þess 50 metrar yfir sjávarmáli.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira