Helmingur kynferðisbrota á heimili eða einkalóð 16. nóvember 2007 14:13
Helmingur kynferðisbrota sem kærð voru á fyrstu tíu mánuðum ársins áttu sér stað á heimili eða einkalóð samkvæmt bráðabirgðatölum úr afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra í október. Þar kemur einnig fram að 15 prósent brotanna átti sér stað á akbraut eða á bifreiðastæði og sex prósent á einhvers konar samkomustað. Tölverð umræða hefur verið um kynferðisbrot að undanförnu en tölur Ríkislögreglustjóra sýna að fjöldi þeirra er svipaður á fyrstu tíu mánuðum þessa árs og síðustu tvö ár, eða á bilinu 230-240. Flest þeirra eru skráð í janúar eða um 40. Þá bendir lögregla á að fá fórnarlömb kynferðisbrota kæri þau til lögreglu. Enn fremur kemur fram í tölum Ríkislögreglustjóra að hraðakstursbrot í október hafi verið nærri 3.400 sem er um þriðjungi meira en í sama mánuði í fyrra. Hins vegar voru þjófnaðarbrot, eignaspjöll, innbrot og fíkniefnabrot færri en í fyrra. Ölvunarakstursbrot reyndust 153 í október sem jafngildir því að fimm menn séu teknir að meðaltali á dag ölvaðir undir stýri. Þegar rýnt er í tölfræði einstakra lögregluembætta kemur fram að umferðarlagabrot í umdæmi lögreglunnar á Akranesi voru nærri þrefalt fleiri í október í ár en á sama tíma í fyrra. Þá reyndist um gríðarlega fjölgun umferðarbrota hjá lögreglunni á Snæfellsnesi á milli ára eða úr 17 í október 2006 í rúmlega 1200 í október í ár. Þetta má rekja til tveggja stafrænna hraðamyndavéla sem settar hafa verið upp í umdæminu. Tölfræði Ríkislögreglustjóra sýnir enn fremur að 85 prósent fíknefnabrota eru skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og í sumum umdæmum eru engin fíkniefnamál skráð.
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Fleiri fréttir Allt tiltækt slökkvilið kallað út vegna reyks „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Sjá meira