Innlent

Fundu ökumann í fjöru

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Lögreglan á Selfossi stöðvaði ölvaðan ökumann í fjörunni við Óseyrabrú á Eyrabakka um sexleytið í dag. Að sögn lögreglunnar hafði maðurinn, sem er erlendur, sopið all hressilega af guðaveigunum og var ástandið á honum eftir því. Maðurinn var sendur í blóðprufu en erfiðlega gekk að taka skýrslu af honum sökum ölvunar og tungumálaerfiðleika. Hann verður því kallaður seinna til skýrslutöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×