Krefjast þess að Múlavirkjun verði lagfærð 23. júlí 2007 09:30 Árfarvegur neðan stíflunnar er nánast þurr eins og sjá má á þessari mynd. MYND/AFP
Svo kann að fara að Múlavirkjun valdi tjóni á lífríki Straumfjarðarár og Baulárvallavatns að mati Landverndar, landgræðslu og umhverfisverndarsamtaka Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum. Þau krefjast þess að virkjunin verði lagfærð til samræmis við þau gögn sem lágu til grundvallar ákvörðun skipulagsstofnunar um að virkjunin skyldi ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Segja þau að lög hafi verið brotin. Í yfirlýsingu samtakanna kemur fram að Múlavirkjun hafi verið mun umfangsmeiri en upphaflega áætlanir gerðu ráð fyrir. Hafi stíflan verið byggð muin hærri en til stóð. Samtökin segja að þetta hafi valdið því að umhverfisáhrif stíflunnar séu því mun meiri. Vatnsborði Baulárvallavatns hafi verið lyft umtalsvert með framkvæmdinni og ekkert náttúrulegt rennsli sé nú í Straumfjarðará á milli vatnsins og lónsins við stífluna. Er óttast að þetta muni valda miklu tjóni á lífríki Straumfjarðarár og Baulárvallavatns. Samtökin krefjast þess að virkjunin verði lagfærð og í samræmi við þau gögn sem lágu fyrir áður en framkvæmdir hófust. Þá segir einnig í yfirlýsingunni að bygginganefnd Eyja- og Miklaholtshrepps ætti að vera fullljóst að lög hafi verið brotin með þessum breytingum. Samtökin hafa send bygginganefndinni bréf þar sem frávik frá gögnum sem lágu til grundvallar ákvörðunar stofnunarinnar eru tíunduð.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira