Fyrrverandi meindýraeyðir dæmdur fyrir vopnalagabrot 19. október 2007 14:25 MYND/Valli
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vopnalagabrot með því að hafa í fórum sínum fjölmargar byssur án þess að geyma þær í læstum hirslum eins og lög gera ráð fyrir. Maðurinn var áður meindýraeyðir á Norðurlandi en félag hans fór í þrot á fyrri hluta árs 2005. Eftir að lögregla fékk ábendingu fór hún í byrjun september sama ár í húsnæði þar sem fyrirtæki mannsins hafði verið og hann hafði sjálfur búið. Fann hún þar á átján byssur af ýmsu tagi á víð og dreif en ekki í byssuskáp eins og lög gera ráð fyrir. Um tveimur mánuðum síðar tilkynnti maðurinn að að þrettán byssum og veiðiboga hefði verið stolið á heimili hans. Aðstoðaði maðurinn lögregluna við að hafa upp á langflestum vopnunum en hann var engu að síður ákærður fyrir að hafa ekki gengið nógu tryggilega frá þeim. Samkvæmt lögum ber einstaklingi sem á fleiri en þrjú skotvopn að geyma þau í sérútbúnum vopnaskáp sem samþykktur er af lögreglustjóra. Dómurinn segir að ekki þurfi að fara í grafgötur með það að freklega hafi verið brotið gegn þessu og að maðurinn hafi borið ábyrgð á því. Segir dómurinn geymsluháttinn óforsvaranlegan og enn ámælisverðari en ella með tilliti til þess að maðurinn hafi átta að teljast fagmaður í meðferð skotvopna. Auk þess að dæma manninn í skilorðsbundið fangelsi voru vopnin öll gerð upptæk.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira