Sættir í Sjálfstæðisflokknum? 19. október 2007 12:25
REI-málið og upplausn meirihlutans í Reykjavík hefur verið afar erfitt mál fyrir flokkinn segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri. Hann segir sátt hafa náðst á fundi Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í gær. Bréf sem sent var Agli Helgasyni, fjölmiðlamanni bendir þó til annars. Fulltrúaráðið fundaði í Valhöll í gærkvöldi þar sem fara átti yfir málefni borgarinnar undanfarna daga. Formaður flokksins, Geir H. Haarde, mætti á fundinn og mæltist til um að flokksmenn stæðu þétt saman og lýsti yfir stuðningi við borgarstórnarflokkinn. Vilhjálmur Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, sagði eftir fundinn að flokkurinn þyrfti að vinna að því nú að vinna traust borgarbúa. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að borgarstjórnarflokkurinn nyti fulls trausts innan flokksins. Í sama streng tók formaður fulltrúaráðsins en bréf sem sent var Agli Helgasyni fjölmiðlamanni og hann birti á bloggsíðu sinni bendir til annars.Þar er því lýst að Geir hafi stormað inn á fundinn, haldið þar ræðu þar sem hann fór fram á að menn sættust og bað síðan um að fundinum yrði slitið. „Annan eins dónaskap og lítilsvirðingu hef ég ekki upplifað af formanni áður," segir bréfritari. Þá greinir DV frá því í dag að innanbúðarmenn telji að Vilhjálmur hætti í pólitík fljótlega og þykja ummæli Geirs frá því í fréttum Stöðvar tvö í gær gefa þeim sögum byr undir báða vængi.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira