Upplýsingafulltrúi aðstoðar Breiðavíkurdreng 19. október 2007 10:54
Þór Jónsson upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar segir að hann muni aðstoða Breiðavíkurdrenginn Guðmund Gissurarson við að fá öll gögn sem til eru um hann í skjalasafni Kópavogsbæjar. Fram kom í frétt Vísi í gær að Guðmundur hefði fengið ritskoðaða skýrslu um sig frá barnaverndarnefnd Kópavogs. Þetta var misskilningur því þarna var um að ræða gögn úr fundargerðum nefndarinnar frá árinum 1964 og 1965. "Ég ræddi við fulltrúa barnaverndarnefndar um mál Guðmundar í morgun og þar kom fram þessi misskilningur," segir Þór í samtali við Vísi. "Um var að ræða fjórar síður af rúmlega 60 úr fundargerðabók frá þessum tíma þar sem Guðmundur kemur við sögu og strikað hafði verið út úr þeim upplýsingar um önnur börn sem ekki endilega voru í Breiðuvík." Þór segir að hann muni hitta Guðmund að máli á mánudag og fara yfir málið og aðstoða hann við að leita sér upplýsinga. "Það getur verið að djúpt sé á frekari gögnum um Guðmund í skjölum barnaverndarnefndar þar sem langt er um liðið," segir Þór. "Hann mun hinsvegar fá í hendur allt sem við höfum. Það er okkar markmið að greiða götu Breiðavíkurdrengja eins og Guðmundar en ekki að gera þeim gramt í geði." Guðmundur Gissurarson segir að hann sé ánægður með að hann fái þessa aðstoð við að leita upplýsinga um sig frá verunni í Breiðuvík. "Ég er viss um að frekari gögn en þessar fjórar síður í fundargerðum séu til staðar í skjalahirslum Kópavogs," segir Guðmundur.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira