Efast um að sameining spítala og hjúkrunarheimilis hafi verið rétt 7. nóvember 2007 17:20 MYND/Heiða
Ríkisendurskoðun segir að ekki hafi verið staðið nógu vel að sameiningu St. Jósefsspítala og Sólvangs í fyrra og draga megi í efa að sameiningin hafi átt rétt á sér.Þetta kemur fram í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á starfsemi stofnunarinnar. Þar segir enn fremur að miklvægt sé að heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið geri árangursstjórnunarsamning við spítalann þar sem fram komi hvaða verkefnum hann eigi að sinna. Þá þurfi að endurskoða samninga við sérfræðilækna og herða eftirlit með því að þeir fari ekki fram úr þeim einingafjölda sem kveðið er á um í samningum við stofnunina. Í úttekt Ríkisendurskoðunar er enn fremur bent á að spítalinn hafi unnið að þróun lækningaaðferða og náð góðum árangri á ýmsum sviðum þjónustu. Einnig séu samskipti og starfsandi almennt góð hjá stofnuninni. Hins vegar hafi verið ýmsar brotalamir við undirbúning og framkvæmd sameiningar St. Jósefsspítala og Sólvangs. Ekki hafi til að mynda verið sett fjárhagsleg og fagleg markmið um það hverju sameiningin ætti að skila. Ríkisendurskoðun telur að sameiningin hafi liðið fyrir þetta. Þá dregur Ríkisendurskoðun einnig í efa að þau rök sem notuð voru þegar sameiningin var ákveðin hafi átt við, þ.e. að rétt væri að koma á einni öflugri heilbrigðisstofnun fyrir sveitarfélagið, eins og víða hafði verið gert á landsbyggðinni. St. Jósefsspítali sé fyrst og fremst sérhæft sjúkrahús sem tekur á móti sjúklingum alls staðar að af landinu en sinnir síður almennri svæðisbundinni sjúkrahúsþjónustu. Sólvangur sé hins vegar hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Hafa ekki unnið bug á rekstrarörðugleikum Þá er bent á að bæði St. Jósefsspítali og Sólvangur áttu í umtalsverðum rekstrarörðugleikum fyrir sameiningu og hefur enn ekki verið sigrast á þeim. Ein af ástæðum þess sé að læknar á St. Jósefsspítala vinni talsvert umfram heimilaðar ferliverka- og læknisverkaeiningar. „Gera verður þá kröfu til stjórnenda spítalans að þeir stýri betur starfi sérfræðilækna," segir í úttekt Ríkisendurskoðunar. Þá segir Ríkisendurskoðun að gera heilbrigðisráðuneytið verði að gera árangursstjórnunarsamning við stofnunina þar sem fram komi hvaða verkefnum spítalinn eigi að sinna og hvernig meta eigi árangurinn.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira