Ósvífin og siðlaus ákvörðun hjá bönkunum 7. nóvember 2007 14:35 Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra. MYND/GVA
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, vill láta kanna hvort bankar hafi lagalega heimild til að meina íbúðakaupendum að yfirtaka húsnæðislán. Segir hún að ákvörðun bankanna sé bæði ósvífin og siðlaus og bitni verst á þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Mun hún ræða málið við viðskiptaráðherra. „Þetta gerir mér mjög erfitt fyrir að bæta stöðu þeirra sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, í samtali við Vísi. „Að mínu mati styðst þessi ákvörðun bankanna við mjög hæpnar lagalegar forsendur og hún er bæði ósvífin og siðlaus." Kaupþing tilkynnti í gær að frá og með næstu mánaðamótum verði lokað fyrir þann möguleika að íbúðakaupendur geti yfirtekið húsnæðislán bankanna. Verða kaupendur þá að taka ný lán á mun hærri vöxtum. Fram kom í hádegisfréttum Stöðvar 2 að sparisjóðir og Frjálsi fjárfestingarbankinn séu nú þegar farnir að krefjast hæstu vaxta ef íbúðalán með 4,15 prósenta vöxtum skipta um hendur vegna íbúðakaupa. Þá er gert ráð fyrir því að aðrir bankar fylgi í kjölfarið og loki einnig á þann möguleika að íbúðakaupendur geti yfirtekið húsnæðislán. Jóhanna segist ætla að ræða málið við viðskiptaráðherra og láta kanna hvort bankar hafi lagalega heimild til að meina íbúðakaupendum að yfirtaka húsnæðislán. „Hérna eru bankarnir að sýna sitt rétta andlit og hvernig þeir hefðu hagað sér ef þeim hefði tekist að bola Íbúðalánasjóði út af markaðinum."
Mest lesið Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Fleiri fréttir Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Sjá meira