Nauðlendingin á Egilsstöðum: Slökkviliðið langt frá því að vera undirmannað Breki Logason skrifar 7. nóvember 2007 10:53 Frá flugvellinum á Egilsstöðum. „
Átta mínútum fyrir lendingu vélarinnar voru allir klárir og það má segja að það hafi verið toppmæting í þetta útkall," segir Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri brunavarna á Austurlandi, um nauðlendinguna á Egilsstaðaflugvelli í gærkvöldi. „Ég var nýbúinn að horfa á þessa umfjöllun um slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli þegar útkallið kemur," segir Baldur en í gær voru umræður í fjölmiðlum um mannafla slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli. Héldu slökkviliðsmenn þar því fram í gær að þeir væru of fáliðaðir ef upp kæmi eldur og þeir þyrftu að fara inn í flugflak. Þar eru minnst 10 manns á vakt en Baldur segir að 14 menn hafi mætt frá Brunavörnum Austurlands í útkallið á Egilsstöðum í gærkvöldi. „Það bættust síðan við fjórir menn frá Flugstoðum og ég er fimmtándi liðsmaður slökkviliðsins sem stjórnandi. Þetta gekk mjög vel og þegar vélin lenti vorum við með fjóra reykkafara tilbúna ef á hefði þurft að halda." Baldur segir að sjö menn séu á vakt í einu og öll bakvaktin fyrir utan einn hafi mætt á staðinn í gær. „Við vorum því með tvöfalt meira afl en við gerum ráð fyrir að þurfi. Við berum höfuðið hátt í dag." Baldur telur því slökkviliðið á Egilsstöðum vera langt frá því að vera undirmannað við svona aðstæður og þegar björgunarsveitafólk, sjúkrabílar, læknar og allir voru mættir hafi hann staðið gapandi yfir skipulaginu. „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem svona útkall kemur og við erum að þróa þetta. Engu að síður er ég mjög ánægður í dag og við munum fara ofan í þá litlu hnökra sem voru á þessu í gær."
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Fleiri fréttir Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Sjá meira