Fáfnismenn verða Vítisenglar um áramót 7. nóvember 2007 08:50 Jón Trausti Lúthersson og félagar hans í Fáfni verða væntanlega meðlimir Hells' Angels um áramótin eftir því sem heimildir Vísis herma. MYND/VÍSIR.IS
Mótorhjólasamtökin Fafner Iceland MC munu væntanlega verða tekin inn í Hells' Angels um áramótin næstu. Heimildarmenn Vísis sem þekkja vel til málsins segjast fullvissir um að þetta standi til. Gerist það mun Fáfnisheitið hverfa af vestum meðlima Fáfnis og Hells' Angels merkið koma í staðinn. Hefð mun vera fyrir því að innlima klúbba inn í samtökin um áramót. Fáfnismenn hafa unnið að miklum breytingum og lagfæringum á klúbbhúsi sínu á Frakkastíg undanfarið en Hells' Angels setja klúbbum sem óska þess að ganga til liðs við þá strangar reglur til þess að fara eftir, meðal annars um aðstöðu í klúbbhúsinu. Talið er að einn þáttur ferðar Vítisenglanna sem komu til landsins á föstudaginn var hafi einmitt verið að taka húsnæðið út til þess að ganga úr skugga um að það uppfyllti kröfur englanna.Þrátt fyrir að Vítisenglarnir hafi ekki komist inn í landið er talið að konum, sem voru í för með þeim hafi verið falið það hlutverk að gera úttekt á húsakosti og annarri aðstöðu Fáfnismanna. Þessi áform gætu þó verið í uppnámi þar sem eigendur hússins á Frakkastíg hafa lýst því yfir að þeir vilji Fáfnismenn burt úr sínum húsum. Í Fáfni eru nú um 10-12 manns sem er svipuð tala og er í flestum Hells' Angels klúbbum víða um Evrópu og segjast heimildamenn Vísis telja að þeir hafi verið svokallaður "Hangaround" klúbbur hjá Hells' Angels í langan tíma.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira