Nýtt fangelsi á Akureyri 21. ágúst 2007 20:30
Nýtt fangelsi verður tekið í notkun á Akureyri innan tíðar. Þar verður stórbættur aðbúnaður, enda gamla fangelsið barn síns tíma. Vinna við nýja fangelsið á Akureyri gengur vel og þá er verið að stækka fangelsið á Kvíabryggju. Ekki er allt upptalið því fyrirhuguð er enduruppbygging á Litla hrauni og nýtt fangelsi fyrirhugað á höfuðborgarsvæðinu. Nýja fangahúsið á Akureyri verður væntanlega tekið í notkun í byrjun næsta árs að sögn Valtýs Sigurðssonar, forstjóra fangelsismálastofnunar. Gamla fangahúsið á Akureyri var löngu úrelt eins og þessar myndir bera með sér. Í skýrslu sem unnin var árið 2004 kemur fram að klefarnir séu allt of litlir, heimsóknaraðstaða engin og lítil aðstaða fyrir fangana að drepa tímann. Nýju fangaklefarnir verða mun stærri og fullkomnari. Alls verður hægt að vista 10 manns af báðum kynjum en ekki bara karla eins og fram til þessa. Það er fjölgun sem nemur tveimur rýmum. Heildarkostnaður við framkvæmdir er um 200 milljónir og er Akureyrarfangelsið liður í því að auka sveigjanleika í afplánun. Hingað munu koma fangar með styttri dóma. Þetta verður fangelsi fyrir fanga sem eru flokkaðir í kerfinu einhvers staðar mitt á milli Kvíabryggju og Litla-Hrauns. Stutt er síðan fangi á Litla-Hrauni svipti sig lífi og segir forstjóri Fangelsismálastofnunar að eitt af því sem bæta þurfi á Akureyri sé aðgengi að geðlæknaþjónustu. Biðtími fanganna eftir geðlækni hafi verið 4-6 vikur fyrir norðan sem sé óásættanlegt. Stytta verði biðtímann. Hins vegar segir hann að fangaverðir á Akureyri hafi unnið mjög gott starf og verið í nánum samskiptum með föngunum sem hafi bjargað miklu.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Sjá meira