Innlent

Vandaverk að skipta verkum í nefndum og ráðum

Gissur Sigurðsson skrifar

Þegar eru skiptar skoðanir meðal stuðningsmanna nýju borgarstjórnarflokkanna, um hvort kjörfylgi eigi að ráða niðurröðun í nefndir og ráð borgarinnar, eða eitthvað annað. Ungliðar í Vinstri - grænum vilja að Björn Ingi Hrafnsson og Dagur B. Eggertsson geri hreint fyrir sínum dyrum.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri mun að líkindum láta af embættinu á borgarstjórnarfundi á þriðjudag. Á þeim fundi verður líka kosið í ráð og nefndir og stefna nýs meirihluta væntanlega skýrast.

Þótt Vilhjálmur verði borgarstjóri í nokkra daga enn má hann ekki brydda upp á neinu nýju eða stofna til skuldbindinga utan þess sem þegar hefur verið ákveðið samkvæmt sveitarstjórnarlögum.

Við nýja meirihlutanum blasir nokkur vandi þegar kemur til skipta í nefndir og embætti því fylgi nýju borgarstjórnarflokkannna var ærið mismunandi í síðustu borgarstjórnarkosningum. Samfylkingin fékk rösk 27 prósent, Vinstri græn hátt í 14 prósent, eða nærri helmingi minna en Samfylkingin, Frjálslyndi flokkurinn fékk rösk tíu prósent og Framsóknarflokkur Björns Inga Hranfssonar aðeins rúm sex prósent, eða fjórum sinnum minna fylgi en Samfylkingin. Það verður því vandaverk að raða niður svo öllum líki.

Og það er að fleiru að huga því ungliðar úr Vinstri - grænum segja að það sé forsenda samstarfs um nýjan meirihluta, að Björn Ingi Hrafnsson geri hreint fyrir sínum dyrum í orkumálum, eins og þeir orða það, og að Dagur B. Eggertsson, verðandi borgarstjóri útskýri hvers vegna hann studdi kaupréttarsamninga til valdra manna hjá REI. Þeir segja einnig að Svandís Svavarsdóttir hafi með framgöngu sinni að undanförnu sýnt að hún sé og verði hinn eini sanni leiðtogi borgarstjórnar Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×