Innlent

Gripið til fullnægjandi aðgerða vegna Fjarðarárvirkjana

MYND/Anton Brink

Iðnaðaráðherra telur að gripið hafi verið til fullnægjandi aðgerða til að tryggja öryggi Fjarðarárvirkjana en hefur lagt fyrir Orkustofnun að fylgjast áfram með framkvæmdum eystra til að tryggja öryggi virkjananna.

Málefni Fjarðarárvirkjana komst í hámæli í sumar þegar í ljós kom að upphaflegum áætlunum um framkvæmdir hafði ekki verið fylgt. Iðnaðarráðherra fól Orkustofnun í ágúst að kalla eftir öllum hönnunargögnum og sömuleiðis að skoða aðstæður á framkvæmdasvæðinu og ræða við framkvæmdaraðila og fulltrúa sveitarstjórnar Seyðisfjarðar sem gefur út leyfi vegna virkjananna. Þá óskaði ráðherra jafnframt sérstaklega eftir því að kannað yrði hvort stærð vatnshverfla væri í samræmi við útgefin virkjanaleyfi.

Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu hefur Orkustofnun nú skilað greinargerð þar sem fram kemur meðal annars að stærð hverfla sé í samræmi við ákvæði virkjunarleyfis. Þá er það mat stofnunarinnar að hönnunargögn uppfylli ákvæði reglugerðar þar að lútandi. Þá hefur leyfishafi gert nauðsynlegar endurbætur á þrýstivatnspípu sem upplýst var að hefði skemmst vegna rangra vinnubragða við lagningu hennar.

Í greinargerðinni kemur fram að Orkustofnun beindi því til hlutaðeigandi að leyfishafi uppfyllti ákvæði laga um að afla byggingarleyfa frá Seyðisfjarðarbæ fyrir öllum leyfisskyldum framkvæmdum. Jafnframt var þeim tilmælum beint til leyfishafa að hann geri bæjarfélaginu grein fyrir öllum fyrirhugðum breytingum á framkvæmdum, haldi jarðraski við lagningu þrýstivatnapípu í lágmarki og lagfæri land að framkvæmdum loknum. Ennfremur er upplýst í greinargerð stofnunarinnar sú ákvörðun Seyðisfjarðarbæjar að auka eftirlit sitt með framkvæmdinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×