Innlent

Huga betur að upplýsingamiðlun á farsóttartímum

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra fundaði með fulltrúum frá Sóttvarnastofnun ESB.
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra fundaði með fulltrúum frá Sóttvarnastofnun ESB. MYND/Anton
Huga þarf betur að upplýsingamiðlun til almennings á farsóttartímum hér á landi að mati fulltrúa frá Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins. Þeir voru hér á ferð í vikunni og tóku út viðbúnað Íslendinga við hugsanlegum fuglaflensufaraldri. Var það gert að ósk heilbrigðisráðherra Evrópusambandsins, en slík könnun er gerð innan sambandsins auk Íslands, Noregs og Lichtenstein.

Fulltrúarnir funduðu meðal annars með sóttvarnalækni, almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og heilbrigðisráðherra. Fram kemur í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu að á fundi með ráðherra hafi verið kynnt bráðbirgðaskýrsla um viðbragðsáætlun Íslendinga.

Fram kom að margt hefði verið vel gert, sérstaklega væri til fyrirmyndar samvinna sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og einnig sú mikla áhersla sem lögð væri á samvinnu við önnur ráðuneyti, stofnanir, fyrirtæki og félög í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×