Landsbankinn býður 200 völdum viðskiptavinum á La Scala á Ítalíu 13. september 2007 18:45
Landsbankinn býður tvö hundruð völdum viðskiptavinum bankans ásamt mökum í ferð til Ítalíu um helgina. Farið verður á La Scala Óperuna, gist verður á fimm stjörnu lúxushóteli og vel gert við sig í mat og drykk. Flogið verður til Milano á Ítalíu í beinu leiguflugi með viðskiptavini Landsbankans klukkan 8 í fyrramálið. Ferðamaður þarf að greiða um 50,000 krónur fyrir sætið færi hann með Icelandair til Mílanó og aftur heim. Gist verður á lúxus hótelinu Principe Di Savoia í miðborg Mílanó. Þetta er fimm stjörnu hótel sem hefur verið griðastaður fyrir ferðamenn og stórstjörnur frá árinu 1920. Hótelið býður jafnan nóttina á 53 þúsund krónur miðað við gistingu í tveggja manna herbergi. Þó má geta þess að afslættir bjóðast á vefsvæði hótelsins en þar var hægt að kaupa gistingu í lúxus herbergi, aðfararnótt sunnudags, fyrir röskar 34,000 krónur. Tvær nætur kosta því 68,000 krónur miðað við afsláttaverðið. Annað kvöld verður boðið upp á léttar veitingar á hótelinu áður en haldið er í La Scala Óperuna. Ekki var hægt að fá uppgefið hvað léttar veitingar kosta á hótelinu Principe Di Savoia. Á La Scala ætla viðskiptavinir Landsbankans að sjá Don Kíkóta. Ekki er ætlast til að fólk mæti á gönguskónum því krafist er spariklæðnaðar. Á heimasíðu La Scala, kostar miðinn 1,300 krónur fyrir þann stað þar sem lakast er að sitja. Bestu sætin kosta hins vegar hartnær 7,000 krónur. Ef meðalvegurinn er farinn kostar 3,600 krónur að njóta Don Kíkóta. Að sýningu lokinni verður boðið upp á veitingar á Four Seasons lúxus hótelinu. Ekki fékkst uppgefið á hótelinu hvað veislan kostar. Á laugardag verður boðið upp á hátíðarkvöldverð í Sforzesco kastalanum. Ekki er ljóst hvað kvöldverðurinn kostar. Viðskiptavinir Landsbankans þurfa að taka fram spariklæðin fyrir kvöldið því konur eiga að mæta á síðkjólum og karlar í reykfötum. Ekki fékkst uppgefið hjá Landsbankanum í dag hver heildarkostnaðurinn er við þessa boðsferð. Venjulegur maður, þjakaður af yfirdrætti í sínum banka, þarf hins vegar að greiða 120,000 krónur hið minnsta fyrir svona reisu.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira