Þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. september 2007 16:57 Hæstiréttur dæmdi Arnerico Luis Da Silva Concalves í þriggja og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi.
Hæstiréttur staðfesti í dag fangelsisdóm yfir Americo Luis Da Silva Conçalves í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga konu þann 10 september 2006 . Þá var hann dæmdur til að greiða fórnarlambinu eina milljón króna í miskabætur. Maðurinn var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar síðastliðnum. Sannað þótti að maðurinn hefði þröngvað konunni með ofbeldi og hótun um ofbeldi til samræðis og munnmaka. Hann beitti konuna endurteknu ofbeldi á meðan kynferðismökunum stóð. Hlaut konan talsverða áverka af. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur er vitnað í skýrslu læknis um komu kæranda á neyðarmóttöku 10. september 2006. Þar segir að konan hafi komið á neyðarmóttöku þann dag kl. 20.30. Hún hafi verið í för með systur sinni. Lýsing læknisins á frásögn konunnar fer hér á eftir. Hún er ekki fyrir viðkvæma.„Frásögn hennar var á þá leið að hún hafi farið út að skemmta sér með systur sinni. Þær hafi hitt tvo menn sem komið hefðu vel fyrir og þær hafi farið heim með þeim. Systir hennar hafi farið með öðrum þeirra afsíðis, en kærandi hafi farið inn í herbergi hins. Hún hafi ekki verið fyrr komin inn í herbergið en hann hafi farið að ganga í skrokk á henni og nauðga henni. Hann hafi bitið hana, klipið, sleikt brjóst hennar, barið hana með hnefa, slegið hana utanundir, rifið í hár hennar, slegið henni utan í vegg og snúið upp á ökkla hennar. Hann hafi haldið henni og tekið hana aftan frá, slegið hana með hnefa í klofið, djöflast með fingrinum í klofi hennar og leggöngum og sprautað sæði yfir andlit hennar. Hún hafi sagt nei við þessu undireins, en það eina sem hann hafi virt, hafi verið er hún grátbað hann um að ,,taka sig ekki rass". Hún hafi orðið ofsalega hrædd og fundið mikið til, en ekki þorað að öskra og verið hrædd um líf sitt. Hún kvaðst finna mikið til, t.d. í klofinu og ökklanum og fannst hún strax dofin frá hné eftir að hann sneri upp á ökkla hennar. Allan tímann hafi hann talað um að ,,ríða tíkinni", en hann hafi talað ensku," segir í skýrslu læknisins. Í dómi Hæstaréttar segir að með vísan til forsendna héraðsdóms um ákvörðun refsingar og fordæma Hæstaréttar sé refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði, en frá henni dragist fimm daga gæsluvarðhaldsvist hans.
Mest lesið Börnin heim eftir meiriháttar vandræðagang Innlent Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Innlent Lögreglan lýsir eftir Sigríði Innlent Fimmtíu manns tóku þátt í leit sem stóð til fjögur í nótt Innlent Fékk hláturskast í ræðustól Innlent Hitnaði í hamsi: „Forseti er með orðið!“ Innlent Ólga meðal þristavina vegna örlaga Gunnfaxa Innlent Grunur um tvö kynferðisbrot á bíladögum Innlent Tíu drepnir í Ísrael og Írönum ráðlagt að rýma Erlent Annar þingmaðurinn látinn og byssumannsins enn leitað Erlent Fleiri fréttir „Stjórnlaus“ ríkistjórnin beiti rökum úr verkfærakistu Trumps Þingmenn stjórnarandstöðu foxillir yfir því að funda á sunnudegi Fimmtíu manns tóku þátt í leit sem stóð til fjögur í nótt Hár orkukostnaður er áhyggjuefni hjá atvinnulífinu Leitað að konu á sextugsaldri, fíkniefni á landamærum og skundað á Þingvöll Grunur um tvö kynferðisbrot á bíladögum Þinglok, Íran og rökrætt um skattastefnu Einn handtekinn eftir hópslagsmál Hitnaði í hamsi: „Forseti er með orðið!“ Lögreglan lýsir eftir Sigríði Börnin heim eftir meiriháttar vandræðagang Ólga meðal þristavina vegna örlaga Gunnfaxa Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Segir íslenska nemendur og skóla fljúga blindflug án samræmds námsmats Fékk hláturskast í ræðustól „Það er svo mikið rugl í gangi“ Brautskráði soninn á síðustu útskriftinni Nýtt dæluhús veldur óánægju á Selfossi „Þetta eru alvarlegir stunguáverkar“ Segir landráðskæru fráleita: „Þetta er mjög hættuleg þróun fyrir íslenskt samfélag“ Hin grunaða með stunguáverka og blindflug án samræmds námsmats Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“ Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Meirihlutinn spari mínútur til að kasta klukkutímum á glæ Alvarlegt atvik á Edition og veiðigjaldafrumvarpið afgreitt úr nefnd Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Bókun 35 aftur rædd fram á nótt Sjá meira