Skilja þarf betur á milli einkaleyfis- og samkeppnisþátta raforkumarkaðar 13. september 2007 16:17 MYND/Páll Bergmann
Samkeppniseftirlitsins telur að huga þurfi að aðgerðum til að virkja betur samkeppni á íslenskum raforkumarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu eftirlitsins í tilefni af því að í dag kom út skýrsla norrænu samkeppniseftirlitsstofnanna um raforkumarkaðinn. Meðal þess sem Samkeppniseftirlitið leggur til er að stjórnvöld og orkufyrirtæki ræði um að skilja betur milli einkaleyfis- og samkeppnisþátta raforkumarkaðarins, þ.e. flutnings og dreifingar annars vegar og framleiðslu og sölu hins vegar. Telur eftirlitið best að skilja þessa þætti alveg að en að lágmarki að skilja þessa starfsemi að í sjálfstæðum félögum. Þá telur eftirlitið að auka þurfi nákvæmni orkumælinga, meðal annars með orkumælum sem senda frá sér upplýsingar um orkunotkun reglulega. „Slíkar orkumælingar ættu að leiða til meiri fjölbreytni í verði á raforku eftir aðstæðum hverju sinni, auka verðvitund neytenda og samkeppni smásala, ásamt því að bæta nýtingu raforku," segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins. Færri raforkusmásalar á Íslandi en í hinum norrænu ríkjunum Enn fremur er bent á að hinn íslenski raforkumarkaður sé að ýmsu leyti frábrugðinn öðrum norrænum raforkumörkuðum. Mun meira hafi verið fjárfest í orkuverum á Íslandi á umliðnum árum en annars staðar á Norðurlöndum og þá eru umtalsvert færri raforkusmásalar á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndunum auk þess sem hlutdeild stærsta framleiðandans í framleiðslu á rafmagni er mjög há. Þá er bent á í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins að mesta vandamál smásölu á raforkumarkaði sé verðvitund neytenda. Fáir hafi skipt um raforkusmásala innan sumra norrænu ríkjanna, sér í lagi á Íslandi. Til þess að auka verðvitund neytanda myndu raforkumælar sem senda reglulega frá sér upplýsingar um notkun vera æskilegir að því gefnu hægt sé að koma þeim upp án óhóflegs kostnaðar. Neytendur gætu þá lagað sig betur að raforkuverðum sem myndi stuðla að hagstæðari kjörum þeirra og betri nýtingu raforku.Skýrslu um norræna raforkumarkaðinn má sjá hér að neðan.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira