Tryggja verður að orkulindir verði í almannaeigu 13. september 2007 13:04
Formaður iðnaðarnefndar Alþingis segir að tryggja verði að orkulindir þjóðarinnar verði í almannaeigu. Formaður Framsóknarflokksins telur hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur orka tvímælis. Viðræður um að bandaríski fjárfestingarbankinn Goldman Sachs ásamt Ólafi Jóhann Ólafssyni rithöfundi kaupi 8,5 prósenta hlut í Geysi Green Energy eru á lokastigi. Þar með verður bandaríski bankinn orðinn óbeinn eignaraðili að Hitaveitu Suðurnesja, sem á og rekur bæði virkjanir og dreifiveitur. Katrín Júlíusdóttir, formaður iðnaðarnefndar Alþingis, sagði í hádegisviðtalinu í gær að það væri hennar skoðun og iðnaðarráðherra hefði einnig lýst því yfir að auðlindirnar ættu að vera í almannaeigu. Hlutverk stjórnvalda væri fyrst og fremst að tryggja fólkinu í landinu ódýrt rafmagn og vatn. Það yrði ekki gert með því að henda auðlindunum út á villtan markað. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að það sé ekkert sjálfgefið að útlendingar komi bakdyramegin inn í íslenska orkuauðlindir. Íslendingar verði að ráða ferðinni og mikilvægt sé að fara yfir málið. Þegar Guðni var spurður hvort hann teldi borgarfulltrúa Framsóknarflokksins í Reykjavík vera á villigötum með stuðningi við hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur sagði hann: „Að háeffa er eitt og það hefur auðvitað verið gert með ein 5-6 orkufyrirtæki á síðustu árum og Orkuveita Reykjavíkur er að fara fram á það sama af hálfu þingsins. Síðan eru margvísleg önnur áform í þeirra huga og þessara stóru orkufyrirtækja sem við þurfum að fara yfir því að þetta er auðvitað almenningsfyrirtæki."
Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Fleiri fréttir Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Sjá meira