Réðist inn á heimili vopnaður sleggju á aðfangadagskvöld Breki Logason skrifar 28. desember 2007 20:21 „
Ég sat hérna og var að opna pakkana mína á aðfangadagskvöld þegar hann stendur allt í einu fyrir framan mig með sleggju í hendinni,“ segir kona sem búsett er á Akureyri og varð fyrir hrikalegri reynslu á jólunum. Fyrrum sambýlismaður hennar réðst þá inn á heimili hennar og þreif í glas sem konan var með í höndunum. „Ég var nú bara að fá mér malt og appelsín eins og allir gera þegar hann rífur það úr höndunum á mér og kastar því í sjónvarpið," segir konan sem var nýbúin að fá sér 42" glænýtt sjónvarpstæki. Því næst gengur maðurinn upp að sjónvarpinu og lætur höggin dynja með sleggjunni. „Hann gekk nú bara berserksgang og eyðilagði sjónvarpið. Hann sagði ekki orð heldur rauk út eftir það. Ég vissi ekker hvað honum gekk til en var dauðskelkuð," segir konan en maðurinn var þá ekki hættur. „Ég sá það svo ekkert fyrr en daginn eftir að hann hafði skorið á öll dekkin á jeppanum mínum. Þau voru öll fjögur ónýt en ég fékk mér ný vetrardekk nú í haust. Þetta er alveg hrikalegt." Konan hringdi á lögregluna sem kom á staðinn og kannaði aðstæður. Lögreglan á Akureyri staðfesti við Vísi að hún hefði haft afskipti af þessu máli en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málsatvik. Konan segist hafa búið með manninum í nokkur ár en hún er nokkuð skelkuð eftir uppákomuna. „Það eru auðvitað allir í hverfinu skíthræddir þegar maður vopnaður eggvopni ræðst svona inn á heimili manns. Meira að segja hundurinn og kötturinn kippast við þegar við heyrum í einhverjum hérna fyrir utan."
Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylking tapar fulltrúum og meirihluti heldur Innlent Getur ekki lengur myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent Gífurleg fagnaðarlæti yfir sigurræðu Almars Innlent Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Innlent Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Innlent Lokatölur í Mosfellsbæ: Meirihlutinn kolfallinn Innlent Fleiri fréttir Lokatölur í Garðabæ: Sjálfstæðismenn bæta við sig fulltrúa Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Lokatölur í Eyjafjarðarsveit: F-listinn stækkar meirihlutann Lokatölur úr Hörgársveit: Gróska fékk flest atkvæði Samhenta sveitin með mikinn sigur í Hvalfjarðarsveit Lokatölur úr Fjarðabyggð: Meirihlutinn heldur þrátt fyrir missi Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylking tapar fulltrúum og meirihluti heldur Getur ekki lengur myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum Lokatölur í Mosfellsbæ: Meirihlutinn kolfallinn Raddir okkar allra unnu stórsigur Lokatölur úr Fjallabyggð: Meirihlutinn heldur velli Lokatölur á Akureyri: Sjálfstæðismenn rétt mörðu Bæjarlistann Lokatölur í Árborg: Sjálfstæðisflokkur hélt hreinum meirihluta Lokatölur í Borgarbyggð og Skorradalshreppi: Meirihlutinn fallinn Lokatölur í Múlaþingi: Meirihlutinn bætir við sig Lokatölur í Bláskógabyggð: Það sama upp úr kössunum og síðast Ingibjörg Þóranna hlaut flest atkvæði í Dalabyggð Einar vill Viðreisn frekar en Miðflokkinn Framtíðarlistinn með meirihluta í Súðavíkurhreppi Ábyrgð náði hreinum meirihluta Lokatölur úr Hrunamannahreppi: Meirihluti D-listans heldur velli Lokatölur í Reykjanesbæ: Sjálfstæðismenn fara með stórsigur af hólmi Lokatölur í Hveragerði: Meirihlutinn fallinn Hildur segir nýjan meirihluta þurfa breiða skírskotun Ný sýn hélt meirihluta sínum í Vesturbyggð Lokatölur í Skagafirði: Byggðalistinn vinnur stórt en meirihlutinn heldur Pétur hræddur um framtíð Borgarlínunnar Lokatölur í Grundarfjarðarbæ: Framsóknarmenn með meirihluta Sjá meira