Fimm og hálft kíló af fíkniefnum til landsins með hraðsendingu 28. desember 2007 19:00
Tollgæslan á Suðurnesjum lagði hald á fimm og hálft kíló af hörðum efnum sem komu með hraðsendingu til landsins frá Þýskalandi. Þetta er mesta magn sem tollgæslan hér á landi hefur fundið við eftirlit með hraðsendingum. Það var um miðjan nóvember sem tollgæslan á Suðurnesjum lagði hald á efnin,fimm kíló af amfetamíni og hálft kíló af kókaíni. Viðamikil rannsókn hófst í kjölfarið sem teygir anga sína meðal annars til Þýskalands og hefur lögreglan á Suðurnesjum í samstarfi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu borið hitann og þungann af rannsókninni. Mikil leynd hefur ríkt yfir rannsókninni en samkvæmt öruggum heimildum fréttastofu þá hefur enginn verið handtekinn vegna málsins. Götuverð efnanna er samkvæmt vef SÁÁ rúmar 28 milljónir króna. Ef efnin eru tiltölulega hrein þá er líklegt að þau verði drýgð og þá gæti verðmæti þeirra numið allt að 85 milljónum króna. Jóhann R. Benediktsson, lögreglu- og tollstjóri á Suðurnesjum sagði í samtali við fréttastofu í dag að kominn sé góður skriður á rannsóknina en sendingin var að koma frá Þýskalandi. Hann segir lögregluna hafa verið í samstarfi við starfsfélaga sína ytra í tengslum við málið en vill að öðru leyti ekki greina frá málsatvikum. Að því er fréttastofa kemst næst þá er þetta mesta magn sem komið hefur hingað til lands með hraðsendingu og lagt hefur verið hald á en efnin fundust við venjubundið eftirlit með sendingunum.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Erlent Fleiri fréttir Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Sjá meira