Innlent

Vakningu þarf til þess að uppfræða erlenda ökumenn

MYND/Anton

Af þeim ellefu sem látist hafa í umferðinni á þessu ári eru þrír útlendingar. Talsmaður Umferðarstofu segir ekki einfalt að fræða útlendinga um hættur í umferðinni hér. Hann segir að vakningu þurfi meðal almennings við að uppfræða erlenda ökumenn.

Séstakt átak var gert í umferðarmálum gagnvart erlendum ökumönnum fyrir verslunarmannahelgina í sumar þegar nýtt umferðarskilti á ensku var afhjúpað. Það tiltekur að malbik endi og við taki malarvegur. Þótt þetta framtak sé vissulega lofsvert þarf augljóslega meira til.

Ljóst er að erlendir ökumenn glíma í fæstum tilvikum í heimalandi sínu við aðstæður líkar þeim sem hér eru og allra síst þegar vetur er genginn í garð. Af tveimur banaslysum þar sem útlendingar áttu í hlut var vetrarfærð.

Þann þriðja mars síðastliðinn lést tæplega fertugur Ítali er hann ók bifreið sinni út af veginum í Hörgárdal. Þann sautjánda september lést tvítugur Pólverji á Vestfjarðavegi þegar bíllinn sem hann ók fór þar út af veginum. Og nú fyrir helgi lést indversk kona á sextugsaldri er bifreið sem hún var í lenti í mjög hörðum árekstri við annan í flughálku á norðaverðri Holtavörðuheiði.

Í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda sem samþykkt var í vor er gert ráð fyrir að verja fé til að auka öryggi erlendra ökumanna hér. Einar Magnús Magnússon hjá Umferðarstofu segir að mesti vandinn sé að ná til útlendinga sem hyggjast aka um vegina hér á landi.

Einar Magnús segir að nú sé unnið að gerð bæklings fyrir þá útlendinga sem hér búa en einnig hefur Umferðarstofa unnið fræðslumynd fyrir útlendinga um hættuna í umferðinni hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×