Stjórnvöld hemji gjaldtöku bankanna 29. október 2007 12:29
Stjórnvöld verða að grípa inn í og hemja gjaldtöku bankanna, að mati Jóhannesar Gunnarssonar, formanns Neytendasamtakanna. Hann segir fámennið og krónuna hindra erlenda banka í að koma til Íslands. Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor sagði í fréttum í gærkvöldi að einkavæðing bankanna hefði mistekist og að vaxtamunur á Íslandi hafi aukist eftir einkavæðinguna. Menn hafi ekki gætt þess að tryggja harða samkeppni. Formaður Neytendasamtakanna tekir undir þetta og segir vaxtamun og gjaldtöku bankanna of mikinn. Hann segir bankamarkaðinn fákeppnismarkað. Fyrirtækin séu ekki að keppa í kjörum gagnvart hinum almenna viðskiptavini heldur fyrst og fremst að byggja í kringum sig einhverja ímynd. Bankarnir hafa oft á síðustu árum verið gagnrýndir fyrir að veita viðskiptavinum of lága vexti af innistæðum en rukka of háa vexti af lánum. Síðast þegar þessi umræða blossaði upp síðastliðinn vetur, sagði bankastjóri Landsbankans rangt að vaxtamunur hér sé hár. Jóhannes segir fjölmargar skýrslur sýna annað. „Að sjálfsögðu slær það íslenskan almenning verulega að á sama tíma eru þeir alltaf að slá met í hagnaði. Hvaðan kemur þessi hagnaður? Ég held að töluverður hluti hans eigi rót sína að rekja til viðskipta við Íslendinga," segir Jóhannes. Hér á að ríkja frjáls samkeppni, segir Jóhannes, en hún þarf að vera virk.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Fleiri fréttir Ráðningarferli lögreglustjóra lá niðri vegna sumarleyfa Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Sjá meira