Andlát: Marta G. Guðmundsdóttir 6. nóvember 2007 21:32 Marta G. Guðmundsdóttir lést á krabbameinsdeild Landspítalans í gær.
Marta G. Guðmundsdóttir kennari og Grænlandsjökulsfari lést á krabbameinsdeild Landspítalans í gær, 37 ára að aldri. Marta fæddist 29. apríl 1970 í Reykjavík. Hún var dóttir hjónanna Hallberu Ágústsdóttur húsmóður og Guðmundar Finnssonar pípulagningarmeistara í Grindavík. Marta lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautarskóla Suðurnesja og kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands. Hún starfaði sem grunnskólakennari bæði á Englandi og í Grindavík. Marta var liðtæk íþróttakona, lék körfuknattleik með Grindavík og Keflavík, knattspyrnu með Grindavík og var í unglingalandsliðinu í körfuknattleik. Marta vakti þjóðarathygli þegar hún í maí og júní sl. gekk á gönguskíðum þvert yfir Grænlandsjökul til að vekja athygli kvenna á mikilvægi þess að fara reglulega í brjóstaskoðun og til að afla fé til frekari rannsókna á brjóstakrabbameini. Sjálf greindist Marta með brjóstakrabbamein í október 2005 og gekkst undir uppskurð ásamt lyfja- og geislameðferð í kjölfarið sem lauk í júní 2006. Meðan á meðferðinni stóð reyndi Marta að setja sér ýmis markmið til að ná fyrri heilsu að meðferð lokinni. Marta einbeitti sér að því að hreyfa sig eins og þrek leyfði og einnig fannst henni mikilvægt að reyna að lifa sem eðlilegustu lífi þrátt fyrir veikindin og tók þátt í daglegu amstri eins og hún treysti sér til. Marta fór í nokkrar gönguskíðaferðir hér heima, m.a. á Sprengisandi, til að undirbúa sig fyrir Grænlandsferðina. Marta sinnti starfi sínu áfram sem kennari þar til fyrir skömmu er hún greindist með illvíg meinvörp í höfði. Marta lætur eftir sig eina stúlku, Andreu Björt Ólafsdóttur, sem fædd er 1995.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Fleiri fréttir Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Sjá meira