Innlent

Vítisengill í Leifsstöð með morðingjamerki á vestinu

Þegar Norðmaðurinn var á Íslandi í vor var hann til reynslu hjá Hells Angels eða svokallað „prospect“.
Þegar Norðmaðurinn var á Íslandi í vor var hann til reynslu hjá Hells Angels eða svokallað „prospect“.
Maðurinn sem um ræðir er lengst til hægri.

Annar Vítisengillinn sem var hér á landi í vor og Vísir sagði frá í gær var á meðal þeirra sem reyndu að komast inn í landið á föstudaginn var. Hann hefur nú öðlast full réttindi innan samtakanna auk þess sem hann skartar merki sem þýðir að hann hafi myrt í þágu félaga sinna.

 

Á myndunum sem Vísir benti á í gær má sjá að maðurinn sem um ræðir bar þá merki á vesti sínu sem sýndu að hann var til reynslu hjá samtökunum, eða svokallað „prospect".

 

Þegar menn eru með „prospect" stöðu hjá Hells Angels þýðir það að þeir séu í raun meðlimir, þó þeir njóti ekki allra fríðinda sem fylgir því að vera „full patch" eða fullgildur meðlimur.

Þegar hann lenti á Keflavíkurflugvelli á föstudag hafði hann hins vegar greinilega klifið metorðastigann því hann bar öll einkennismerki Hells' Angels á vesti sínu og var því orðinn svokallaður „full patch". Til viðbótar var hann svo með merki sem á stóð „666". Þeir sem bera slíkar merkingar, eða merki sem á stendur „Filthy few forever", eru sagðir hafa drepið í þágu samtakanna og njóta mikillar virðingar í sínum hópi.

 

Þetta hefur Vísir frá heimildarmönnum sínum og í Kastljósi í kvöld staðfesti Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, að svona merki hefði sést í Leifsstöð á föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×