Ósmekklegt að draga Geir inn í málið 6. nóvember 2007 19:09
Forsætisráðherra var tilkynnt um samning um samruna REI og Geysis Green Energy áður en kynningarfundur var haldinn á samrunanum í byrjun október. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ósmekklegt að draga forsætisráðherra inn í málið. Kynningarfundurinn var haldinn í stöðvarstjórahúsi Orkuveitunnar í byrjun október. Fundinn sátu meirihlutinn í borgarstjórn, yfirstjórn Orkuveitunnar og fulltrúar Akraness og Borgarbyggðar. Björn Ingi Hrafnsson fulltrúi Framsóknarflokksins í fyrrverandi og núverandi meirihluta borgarstjórnar segir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson þáverandi borgarstjóri hafa sagt á fundinum að Geir H. Haarde forsætisráðherra litist vel á samruna REI og Geysis Green Energy. Nokkuð óljóst hefur verið hingað til með hvað Geir hafi vitað um málið og hvenær honum hafi verið greint frá samrunanum. Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, staðfesti það að Vilhjálmur hafi á fundinum sagt að hann hafi rætt málið við Geir H. Haarde. Gísli segir að hafa þurfi í huga að borgarstjóri hafi ekki vitað af ýmsum ákvæðum samrunasamningsins á þessum tíma og ósmekklegt sé að draga forsætisráðherra inn í málið. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, var ekki tilbúinn að veita fréttastofu Stöðvar 2 viðtal vegna málsins í dag þótt eftir því væri leitað. Í kvöldfréttum Útvarpsins sagði Geir að Vilhjálmur hefði nefnt fyrirætlanir varðandi samrunann en hann hefði ekki lagt blessun sína yfir samninginn.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Fleiri fréttir Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Sjá meira