Innlent

Funda með fjárlaganefnd vegna manneklu á hjúkrunarheimilum

Fulltrúar frá Aðstandendafélögum heimilisfólks á hjúkrunarheimilunum Skjóli og Droplaugarstöðum í Reykjavík og Holtsbúð í Garðabæ ganga í fyrramálið á fund fjárlaganefndar Alþingis vegna manneklu á hjúkrunarheimilunum þremur og víðar.

Fram kemur í bréfi frá stjórnum aðstandendafélaganna til fjárlaganefndar að þau telji að stórauka þurfi daggjöld til hjúkrunarheimila í landinu. Skortur sér á starfsfólki og undir það taki landlæknir sem hafi í yfirlýsingu í fyrra bent á að brýnt sé að leita leiða til að bæta úr því ástandi.

Þá benda aðstandendafélögin á að vegna fjárskorts hafi heimilin verið að draga saman seglin. Ástandið sé í algjörri andstöðu við yfirlýsingar allra flokka fyrir síðustu kosningar og umræðuna í samfélaginu almennt. Þess vegna vilji aðstandendafélögin ræða við nefndina. „Við lítum svo á að þessi mál þoli enga bið," segir í bréfi til fjárlaganefndar.

Fulltrúar frá aðstandendafélagi heimilismanna í Skjóli og á Droplaugarstöðum funduðu í síðustu viku með heilbrigðsnefnd en sögðu eftir fundinn að lítið hefði komið út úr honum. Vonast hefði verið eftir því að heilbrigðisnefnd lýsti því yfir að það þyrfti að gera stórátak í þessum málum en af því hefði ekki orðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×