Staðfesti að Vilhjálmur hafi kynnt REI málið fyrir forsætisráðherra 6. nóvember 2007 13:53 Jón Kristinn Snæhólm, aðstoðarmaður fyrrverandi borgarstjóra. MYND/GVA
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, þáverandi borgarstjóri, kynnti samruna Geysis Green Energy og Reykjavík Energy Invest fyrir Geir H. Haarde, forsætisráðherra, áður en kynningarfundur var haldinn um málið fyrir þáverandi borgarstjórnarmeirihluta. Þetta staðfesti Jón Kristinn Snæhólm, fyrrverandi aðstoðarmaður Vilhjálms, í samtali við Vísi. Jón ítrekar þó að á þeim tímapunkti hafi hvorki Vilhjálmur né Geir vitað af þeim ákvæðum er sneru að kauprétti starfsmanna REI og 20 ára einkarétti REI á öllum verkefnum Orkuveitu Reykjavíkur á erlendri grund. Jón sagðist ennfremur hafa sett sig í samband við Vilhjálm sem hefði staðfest þetta. Fréttin birtist fyrst á Vísi klukkan 15.37. Laust eftir klukkan fjögur eða um hálftíma síðar hafði Jón Kristinn hins vegar samband við Vísi og sagðist hafa misskilið orð fyrrverandi borgarstjóra. Dró hann til baka þær fullyrðingar um að Vilhjálmur hefði hitt Geir og kynnt samruna fyrirtækjanna sérstaklega. Það skal tekið fram að fréttin eins og hún birtist fyrst á Vísi var lesin fyrir Jón Kristinn. Gerði hann þá engar athugasemdir við þau ummæli sem höfð voru eftir honum þar. Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir á heimasíðu sinni að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, þáverandi borgarstjóri, hafi kynnt samrunahugmyndir Geysis Green Energy og Reykjavík Energy Invest fyrir Geir H. Haarde forsætisráðherra áður en kynningarfundur var haldinn um málið fyrir þáverandi borgarstjórnarmeirihluta. Segir Björn Ingi ennfremur að forsætisráðherra hafi tekið vel í hugmyndina. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, hefur hingað til neitað að svara spurningum fjölmiðla vegna málsins.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Fleiri fréttir Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Sjá meira