Áhrif fíkniefnafundar kemur fram eftir tvo mánuði 6. nóvember 2007 11:50 MYND/Heiða
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að það komi í ljós eftir einn til tvo mánuði hvaða áhrif umtalsverður fíkniefnafundur á síðustu vikum hafi á fíkniefnamarkaðinn. Hann segist ekki hafa orðið var við það hjá sjúklingum á Vogi að þeir kvarti undan fíkniefnaþurrð í landinu. Fram kemur í Fréttablaðinu í dag að í Tollgæslan á Suðurnesjum hafi lagt hald á um 800 grömm af fíkniefnum í fjórum málum sem komið hafa upp á Keflavíkurflugvelli á rúmum tveimur vikum. Í öllum tilvikum var um kókaín eða amfetamín að ræða og bætist þetta magn við um 40 kíló af fíkniefnum sem hald var lagt á í Fáskrúðsfjarðarmálinu í september. Fréttablaðið hefur eftir heimildarmanni sem kunnugur er fíkniefnaheiminum að smygltilraunirnar á Keflavíkurflugvelli séu til marks um ákveðinn skort á markaðnum eftir Fáskrúðsfjarðarmálið. Þórarinn Tyrfingsson segir að forstöðumenn SÁÁ geti ekki fullyrt um það hvort skortur sé á fíkniefnum hér á landi en þeir hafi ekki orðið varir við að sjúklingar kvarti yfir því. Hann segir verð á fíkniefnum hafa hækkað tímabundið eftir stórar haldlagningar og að von sé á verðkönnun á næstu dögum sem leiða muni í ljós hvort fíkniefni hafi hækkað mikið í verði að undanförnu. „Eins og er er ekkert sem bendir til þess að það sé önnur staða nú en áður þegar hald hefur verið lagt á mikið af fíkniefnum," segir Þórarinn. Hann segir stórar haldlagningar hafa haft ótrúlega lítil áhrif á markaðinn hingað til að mati manna hjá SÁÁ. Þórarinn segir enn fremur að menn sjái það betur eftir einn til tvo mánuði hvaða áhrif fíkniefnafundurinn á Fáskrúðsfirði og á Keflavíkurflugvelli hafi. „Ég vona að við sjáum þá verðið hækka og að fólk kvarti undan fíkniefnaþurrð," segir Þórarinn.
Mest lesið Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags Innlent Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Innlent Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Innlent Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Innlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Fleiri fréttir Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags „Ómetanlegur fjársjóður“ í heimsókn á Íslandi Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu Sjá meira