Innlent

Ung stúlka slapp með skrekkinn

Sautján ára stúlka slapp með skrekkinn þegar hún missti stjórn á bíl sínum í fljúgandi hálku á Akureyri í gær.

Bíllinn rann inn á grasflöt, þar í gegnum trjágróður,fram af hálfs annars metra háum kanti og ofan á tvo mannlausa bíla við safnaðarheimili Akureyrarkirkju.

Af þeim rann bíllinn og stefndi á snar bratta brekkkuna niður í miðbæinn, en á síðustu stundu hafnaði hann á steyptu blómakeri og nam staðar. Stúlkan slapp ómeidd en bílarnir þrír eru stór skemmdir, ef ekki ónýtir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×