Umhverfissinni smíðar flugvél í frístundum og spilar á fullvaxið pípuorgel í bílskúrnum 24. júlí 2007 18:30
Einn helsti baráttumaður gegn virkjunum í neðri hluta Þjórsár er þúsund þjala smiðurinn Ólafur Sigurjónsson í Forsæti. Á meðan hann berst ekki gegn áformum Landsvirkjunar leikur hann á pípuorgel ættað úr Landakirkju í Vestmannaeyjum í bílskúrnum sínum og hann smíðar líka flugvél. Það hljóp á snærið hjá Ólafi í Forsæti árið 1977 þegar hann keypti orgelið úr Landakirkju í Vestamannaeyjum sem margir töldu að gosið hefði eyðilagt með öllu. Ólafur safnar nú kröftum í baráttunni fyrir óbreyttum Urriðafossi sem fellur nærri Forsæti með því að leika á orgelið sem hann hefur gert sem nýtt og sett upp í bílskúrnum heima hjá sér. Ólafur er flugmaður, bóndi, tónlistarmaður, smiður, náttúruverndarsinni og mikill hagleiksmaður. Hann hefur gert upp gamalt fjós að Forsæti og þar hefur hann opnað listasafn í félagi við konuna sína. Þarna sýna þau listaverk, gömul tæki og gripi sem Ólafur og faðir hans hafa smíðað. Ólafur vinnur nú líka að því að gera upp flugvél í einu útihúsanna að Forsæti. Margt er augljóslega óunnið og flugvélin er enn að mestu notuð sem bæli kattarins. Ólafur smíðar sína flugvél úr krossviði en ekki áli sem er engu að síður vinsæll efniviður í flugvélar. Ólafur segir að Bandaríkjamenn þurfi að endurvinna meira af áldósum en á stuttum tíma gætu þeir náð að endurvinna jafnmikið magn áls og í öllum flugflota Bandaríkjamanna.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Sjá meira