Auralaus sælkeri handtekinn á veitingahúsi 24. júlí 2007 16:37
Karlmaður um fertugt var handtekinn á veitingahúsi í miðborginni í gærkvöld en þar hafði hann gert vel við sig í mat og drykk samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þegar kom að því að greiða reikninginn gat maðurinn hins vegar ekki borgað fyrir kræsingarnar. Hann er því skiljanlega ekki lengur neinn aufúsugestur á veitingastaðnum en maðurinn er raunar óvelkominn á fleiri stöðum. Undanfarnar þrjár vikur hefur maðurinn neytt matar og drykkjar á sex veitingahúsum í höfuðborginni án þess að vera borgunarmaður fyrir því sem hann fékk sér. Karlmaður á líkum aldri var handtekinn á öðru veitingahúsi í miðborginni í gær en sá gat ekki heldur borgað fyrir matinn sem hann lét ofan í sig. Sami maður kom líka við sögu hjá lögreglu fyrr í mánuðinum en þá gisti hann á hóteli í nokkra daga en reyndist síðan ekki fær um að borga fyrir þjónustuna. Það var í þriðja sinn á árinu sem maðurinn fékk sér hótelgistingu, svo vitað sé, en í öll skiptin var hann auralaus þegar kom að skuldadögum segir ennfremur í tilkynningu lögreglunnar.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fleiri fréttir Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Sjá meira