Forsetinn hefur frumkvæði af forvarnardegi 17. nóvember 2007 10:48
Miðvikudaginn 21. nóvember verður haldinn Forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Í 9. bekkjum verður dagskrá helguð baráttunni gegn fíkniefnum þar sem áhersla er lögð á uppbyggilegar forvarnir og þátttöku ungmennanna sjálfra. Forvarnardagurinn var í fyrsta sinn haldinn í fyrra undir kjörorðinu „Taktu þátt! Hvert ár skiptir máli." Hann er haldinn að frumkvæði forseta Íslands en aðrir aðstandendur eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og lyfjafyrirtækið Actavis sem er aðalstuðningsaðili verkefnisins. Fulltrúar íþrótta- og æskulýðssamtaka og aðrir aðstandendur Forvarnardagsins munu heimsækja grunnskóla og taka þátt í umræðum um aðferðir sem gagnast best í baráttunni við fíkniefni. Ungmennin takast á við spurningar í þremur flokkum og eru hvött til að koma fram með hugmyndir að samverustundum fjölskyldunnar, tillögur til íþrótta- og æskulýðssamtaka og ræða einnig frestun á áfengisneyslu. Niðurstöður úr hópastarfi ungmennanna á Forvarnardaginn, tillögur þeirra og hugmyndir verða teknar saman og gefnar út í sérstakri skýrslu sem verður kynnt á vettvangi sveitarfélaga, íþrótta- og æskulýðssamtaka og víðar fljótlega eftir áramót. Skýrsla með niðurstöðum umræðna á Forvarnardaginn í fyrra er aðgengileg á heimasíðunni forvarnardagur.is Myndband sem sérstaklega er gert í tilefni af Forvarnardeginum verður sýnt í öllum grunnskólum. Þar flytur forseti Íslands ávarp auk þess sem upplýsingar eru veittar um heilræðin þrjú, rætt er við ungmenni og þjóðþekkt afreksfólk úr heimi íþrótta og lista flytur boðskap Forvarnardagsins. Heimasíðan forvarnardagur.is heldur saman öllu efni er tengist Forvarnardeginum en þar er einnig að finna nýjan ratleik á Netinu sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og Bandalag íslenskra skáta hafa sett saman og ungmenni í 9. bekk eru hvött til að taka þátt í. Dregið verður úr hópi þeirra sem senda inn réttar lausnir í ratleiknum og eru vegleg verðlaun í boði. Allmörg ungmenni hafa verið valin til að vera sérstakir málsvarar Forvarnardagsins, m.a. við fjölmiðla, enda er einn megintilgangur með Forvarnardeginum að hlýða á skilaboð ungmennanna sjálfra og ráð þeirra um hvernig best sé að fjölga samverustundum fjölskyldunnar, auka framboð á íþrótta- og æskulýðsstarfi við hæfi og hvernig hægt sé að vinna saman að því að fresta áfengisneyslu ungmenna. Þessir málsvarar verða til reiðu næstu daga. Í næstu viku verða birtar auglýsingar í fjölmiðlum með skilaboðum Forvarnardagsins þar sem byggt er á röddum nemenda í grunnskólum landsins, tillögum þeirra og sjónarmiðum sem fram komu á Forvarnardeginum í fyrra. Það er von aðstandenda að með atburðum eins og Forvarnardeginum sé hægt að greiða fyrir auknum samskiptum þeirra sem annt er um velferð íslenskra ungmenna svo að tími þeirra nýtist sem best í leik og starfi. Fjölmiðlar eru hvattir til að leggja málinu lið með umræðum um árangursríkar forvarnir gegn fíkniefnum.
Mest lesið Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Innlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Innlent „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Innlent Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Innlent „Alveg hræðilegt ástand“ Innlent Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Innlent Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Innlent Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Erlent Fleiri fréttir Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn „Alveg hræðilegt ástand“ Aldraðir stíga fram og opna sig um „hræðilega stöðu“ Ekið á gangandi vegfaranda Suðurlandsvegi lokað vegna áreksturs tveggja bíla „Þetta er sorglegur dagur fyrir lýðræðið“ „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Samþykktu heimild til að svipta flóttamenn vernd Þurfa að brúa sex milljarða króna bil Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Styrkur svifryks áfram hár í borginni Lögga ákærð fyrir leit án heimildar Yfirvöld hafi útvegað tvö ný rými og óbreytt ástand Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Arnar Eggert hafnar því að HÍ sé „vók-útungunarstöð“ Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Fólk sólgið í bollur og mjög opið fyrir nýjungum Óbreytt ástand á Landspítala og svifrykið hrellir borgarbúa Kallar eftir rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Guðmundur Ingi gefur ekki kost á sér Sjá meira