Segir margt gott í fjárhagsáætlun en undrast annað 20. nóvember 2007 21:28 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson undrast að meirihlutinn leggi ekki fram málefnasamning. MYND/Völundur
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur segist ánægður með margt í fjárhagsáætlun meirihlutans sem kynnt var í dag. „Þessi fjárhagsáætlun var að miklu leyti undirbúin af okkur í gamla meirihlutanum undir minni stjórn þannig að eðlilega er margt í henni sem ég er sáttur við.," segir Vilhjálmur. Hann segist hins vegar vera ósáttur við nokkur atriði. „Ég er ósáttur að ekki skuli haldið áfram að lækka fasteignaskatta eins og við höfðum hafið þegar við vorum í meirihluta," segir Vilhjálmur en tillaga þess efnis sem lögð var fram af sjálfstæðismönnum í borgarstjórn í dag var felld. „Þetta er sérstaklega slæmt í ljósi þess að fasteignamatið mun hækka næstunni sem gerir það að verkum að skattarnir munu hækka enn frekar. Í öðru lagi þá ber þessi áætlun með sér að ekki á að byggja mislægu gatnamótin á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar." Vilhjálmur bendið á að um gatnamótin 80 þúsund bílar á sólarhring auk þess sem kannanir hafi sýnt að öryggi myndi batna auk þess sem meirihluti borgarbúa sé á þeirri skoðun að þau eigi að byggja. „Við í minnihlutanum erum ósátt við þetta auk þess sem stefna meirihlutans í skipulags og íbúðamálum er yfir höfuð óskýr og loðin." Vilhjálmur bendir á að ekki komi fram í áætluninni hvort meirihlutinn hyggist standa við áætlanir fyrri meirihluta um aukið framboð á lóðum í borginni og þá sérstklega á lóðum undir sérbýli. Framtíð Vatnsmýrarinnar og Reykjavíkurflugvallar er einnig óráðin að því er virðist, að sögn Vilhjálms. „Það er ekkert tekið á þeim málum í þessu plaggi, bara talað um að halda áfram undirbúningi að íbúðarbyggð á svæðinu. Ég minni á að helsta kosningaloforð F listans var að tryggja flugvöllinn í Vatnsmýrinni." Að síðustu segir Vilhjálmur afskaplega sérstakt að meirihlutinn skuli ekki leggja fram málefnasamning og segir hann það vera vanvirðingu við borgarbúa. „Ágreiningsmálin á milli þessa fólks eru greinilega það stór að þau geta ekki lagt hann fram. Ég man nú ekki betur en að þau hafi gagnrýnt okkur á sínum tíma fyrir að leggja fram málefnasamning sem þau sögðu rýran í roðinu. Nú ætla þau hins vegar bara að sleppa því alfarið," segir Vilhjálmur og bætir því við að það sé í fyrsta sinn í sögu borgarinnar sem það gerist.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Innlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Innlent Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Hildur í beinni um þreifingar dagsins Lögreglu hafi stafað hætta af manninum „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjá meira