Innlent

Lýst vel á tillögu um takmörkun auglýsinga

Heilbrigðisráðherra lýst vel á tillögu um takmörkun auglýsinga á óhollri matvöru sem beint er að börnum. Tillagan liggur nú fyrir Alþingi.

Það er Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir þingmaður Samfylkingarinnar sem leggur tillöguna fram. Ásta segir offitu vaxandi vandamál meðal barna hér á landi líkt og víðar. Hún vill að Íslendingar reyni að sporna gegn þessari þróun meðal annars með því að fara svipaða leið og Bretar. Þeir hafa bannað auglýsingar á óhollri matvöru þangað til níu á kvöldin til að koma í veg fyrir að auglýsingum um skyndibitamat og aðra óhollustu sé haldið að börnum. Ásta vill að heilbrigðisráðherra nái samkomulagi við framleiðendur, innflytjendur og auglýsendur um að þessar vörur verði ekki auglýstar í sjónvarpi þegar barnaefni er á dagskrá og ekki fyrr en eftir klukkan níu á kvöldin.

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra fagnar tillögunni. Guðlaugur segir um eitt stærsta lýðheilsuvandamál samtímans og framtíðarinnar að ræða. Hann líti því á það jákvæðum augum að vera hvattur til að ná samstöðu um að draga úr auglýsingunum með þeim aðilum sem að þeim standa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×