REI á að skila inn tilboði í filippseyskt jarðvarmafyrirtæki á morgun 20. nóvember 2007 11:49 Bjarni Ármansson og Guðmundur Þóroddsson, stjórnarformaður og forstjóri REI MYND/GVA
Reykjavík Energy Invest og samstarfsaðili þess á Filippseyjum eiga á morgun að skila inn tilboði í 60 prósenta hlut filippseyska ríkisins í stærsta jarðavarmafyrirtæki Filippseyja, PNOC-EDC. Fram kemur á vefsíðu Manila Bulletin að þau fyrirtæki sem ætla að bjóða í hlutinn verði að skila inn tilboði til Þróunarbanka Filippseyja á morgun. Eftir því sem fréttastofa kemst næst verður málshraðinn nokkuð mikill og ætti það að liggja fyrir í næstu viku við hvaða bjóðendur filipseyska ríkið gengur til samninga. Hafliði Helgason, upplýsingafulltrúi REI, sagði fyrirtækið ekki geta tjáð sig um tilboðið í PNOC-EDC þar sem það væri bundið trúnaði í tengslum við einkavæðingu filippseyska fyrirtækisins. Töluverð óvissa hefur verið um framtíðaráform REI eftir að nýr meirihluti tók við völdum í borginni en fram kom í fréttum fyrr í mánuðinum að Orkuveita Reykjavíkur hefði samþykkt á styðja áfram við þáttttöku REI í einkavæðingu PNOC-EDC. Með því væri verið að standa vörð um hagsmuni almennings þar sem þegar hefði talsverðum fjármunum verið varið í verkefnið og verulegir hagsmunir væru í húfi. Þá þyrfti að standa vörð um trúverðugleika REI. Fram hefur komið að REI og Geysir Green Energy standi að tilboði í PNOC-EDC í bandalagi við filipseyska fyrirtækið First Gen Corporation sem er stærsta orkufyrirtæki Filippseyja í einkaeigu. Um er að ræða 40 prósenta hlut í PNOC-EDC en honum fylgir 60 prósent af atkvæðarétti í félaginu. Ljóst er að REI og GGE munu ekki eignast meirihluta í félaginu því þau skilyrði eru sett fyrir kaupunum að innlendur aðili eigi 60 prósent af þeim hlut sem boðinn er út.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Fleiri fréttir Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Sjá meira