Orkuveitan krafði viðskiptavini um margfalt vanskilagjald 23. október 2007 18:45
Orkuveita Reykjavíkur krafði suma viðskiptavini sína um margfalt vanskilagjald af einum og sama greiðsluseðlinum. Dæmi eru um að viðskiptavinir hafi verið krafðir um þúsundir króna þegar krafan átti einungis að vera 450 krónur. Orkuveitan segir að þetta hafi verið mistök. Fjölmörgum viðskiptavinum Orkuveitunnar var mjög brugðið á dögunum, en þeir sem ekki náðu að greiða á gjalddaga fengu tilkynningu frá fyrirtækinu um vanskil á greiðsluseðli sem er ósköp eðlilegt. Það sem var sérstakt er að krafa var gerð um vanskilagjald á hvern einasta lið greiðsluseðilisins í stað þess að vanskilagjaldið væri eitt og einungis sett á heildarupphæðina, en ekki á hverja sundurliðun. Fyrir innheimtuseðil sem fréttastofan hafði í höndum voru sendir fimm áminningarseðlar um að 450 króna vanskilagjald yrði lagt á hvern og einna eftirfarandi liða: Fyrir notkun á rafmagni í bílskúr, fyrir notkun á rafmagni í sameign, fyrir notkun á rafmagni í rishæð og fyrir notkun á heitu vatni. Einnig er vanskilagjald lagt á hið umdeilda seðilgjald sem er hærra en seðilgjaldið sjálft. Viðskiptavinur Orkuveitunnar sem átti að fá kröfu upp á 450 krónur í þessu tilviki fékk þannig kröfu uppá 2,250 krónur. Sigurður Sigurðsson, hjá innheimtudeild Orkuveitunnar, segir að hér hafi ekki verið um raunverulegar kröfur að ræða á hendur viðskiptavinum, heldur urðu mistök sem réðu því að vanskilaseðlarnir fóru út með þessum hætti. Orkuveitan fékk nýlega nýja prentsmiðju til að vinna greiðsluseðlana og þetta varð niðurstaðan. Sigurður sagði að viðskiptavinum hefði í raun ekki verið unnt að greiða þessar kröfur því þær hefðu aldrei verið stofnaðar á þá í bókhaldi fyrirtækisins. Í samtali við fréttastofu mælti hann með því að viðskiptavinir tækju upp beingreiðslu- eða boðgreiðsluþjónustu við að greiða kröfur frá Orkuveitunni en með því félli seðilgjaldið umdeilda niður og miklu meiri líkur yrðu á að reikningar yrðu greiddir á gjalddaga.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira